Boðar fleiri hagræðingartillögur

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. mbl.is/Eyþór

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir fleiri hagræðingartillögur en þær sem komu fram í tillögum hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar vera væntanlegar í fjármálaáætlun sem hann mun leggja fram á þinginu. Hann segir engin áform um frekari sölu ríkiseigna en söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

Þetta var meðal þess sem Daði sagði í sérstökum umræðum um stöðu efnahagsmála í aðdraganda fjármálaáætlunar á þinginu í dag.

„Varðandi tillögur hagræðingarhóps sem hér hafa verið ræddar þá er það auðvitað bara hluti af þeim tillögum sem munu koma fram í fjármálaáætlun um aðhald,“ sagði Daði og svaraði þar gagnrýni sem meðal annars kom frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur, þingmanni Miðflokksins, sem gagnrýndi að hugmyndir hagræðingarhópsins væru aðeins upp á um 1% af árlegum rekstri ríkisins.

„Hvar er nú metnaðurinn? Þetta er varla tölfræðilega marktæk breyting, í raun bara áætlun um óbreytt ástand,“ sagði Nanna og spurði hvort sýn ríkisstjórnarinnar hafi ekki verið að ná fram meiri sparnaði en 1%. Þá vakti hún einnig athygli á því að pólitískum tillögum hafi verið hent út úr vinnu hópsins.

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði Daða jafnframt út í frekari sölu ríkiseigna, meðal annars út í hvort til stæði að selja hlut ríkisins í Landsvirkjun og Isavia. „Engin slík áform eru uppi,“ svaraði Daði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert