Einn til viðbótar var handtekinn í dag í þágu rannsóknar á meintu manndrápsmáli og er nú í haldi lögreglu en karlmaður á sjötugsaldri sem búsettur var í Þorlákshöfn fannst látinn í Gufunesi á þriðjudagsmorgun.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir manninum, að því er segir í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi.
Greint hefur verið frá því að þrjú voru úrskurðuð í vikulangt gæsluvarðhald í Héraðsdómi Suðurlands í gær, tveir karlar og ein kona.
Í tilkynningunni segir að umfangsmikilli rannsókn lögreglunnar á málinu, sem varðar einnig frelsissviptingu og fjárkúgun, miði vel þó hún sé enn á frumstigi.
„Við rannsóknina hefur m.a. verið lagt hald á nokkrar bifreiðar, framkvæmdar hafa verið húsleitir og fjöldi vitna hefur verið yfirheyrður.“
Auk aðstoðar frá öðrum lögregluembættum við rannsóknina hafi almenningur veitt lögreglunni á Suðurlandi gagnlegar ábendingar og myndefni.
„Áfram verður unnið af kappi við rannsóknina en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.“