Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ummæli menntamálaráðherra grafa undan trausti almennings á réttarkerfinu og sýna lítilsvirðingu fyrir sjálfstæði dómsvaldsins – einni af þremur meginstoðum lýðræðisins.
„Við erum löngu hætt að gera ráð fyrir réttlæti hjá íslenskum dómstólum,“ sagði Ásthildur Lóa Þórsdóttir menntamálaráðherra í viðtali eftir að dómur féll henni í óvil í skaðabótamáli þar sem ríkinu var stefnt vegna aðgerða sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, sem Ásthildur og eiginmaður hennar töldu vera lögbrot.
Áslaug segir það algjörlega óásættanlegt að ráðherra í ríkisstjórn – sem beri ábyrgð á framkvæmdavaldi landsins – tali með þessum hætti um íslenska dómstóla.
„Það er ekki aðeins óábyrgt heldur beinlínis hættulegt.“
„Ef ráðherrar ríkisstjórnarinnar sjálfir hafa misst trú á réttlæti íslenskra dómstóla, hvernig eigum við þá að ætlast til þess að borgararnir geri það?“ spyr Áslaug í færslu á samfélagsmiðlum.
Hún segir það eðlilegt að fólk verði ósátt við niðurstöður dómstóla eða telji þær rangar og gagnrýni byggð á rökum og með vísun í lögin eigi fullt erindi í lýðræðislegri umræðu.
„En að ráðherra, sem sjálfur er hluti af framkvæmdavaldinu, ráðist á dómsvaldið með svona alhæfingum er aftur á móti algjörlega óásættanlegt. Það dregur úr trúverðugleika réttarkerfisins og vegur að grunnstoðum lýðræðisins.“
Annað hvort hafi þetta verið alvarlegur dómgreindarbrestur eða meðvituð atlaga að sjálfstæði dómsvaldsins. Hvorugt segir Áslaug vera ásættanlegt.