Um 600 skjálftar hafa mælst

Talið er að virknin gæti haldið áfram með hléum en …
Talið er að virknin gæti haldið áfram með hléum en engar skýrar vísbendingar eru um aflögun á svæðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Um 600 jarðskjálftar hafa mælst í skjálftahrinunni við Reykjanestá sem hófst um klukkan 14:30 í gær, þar af sex skjálftar sem eru yfir þrír að stærð. 

Margar skjálftahrinur hafa átt sér stað á svæðinu allt frá árinu 2021 en síðan 2023 hafa fimm jarðskjálftahrinur orðið á sama svæði og virknin er núna, að því er segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. 

Jarðskjálftarnir eru líklegast gikkskjálftar – vegna breytinga á spennusviði á Reykjanesskaganum, samhliða jarðhræringum þar síðustu ár.

Talið er að virknin gæti haldið áfram með hléum en engar skýrar vísbendingar eru um aflögun á svæðinu.

Ekkert bendir til að kvikuhreyfingar valdi hrinunni.

Ákafinn var mestur í upphafi en fyrstu klukkustundirnar mældust um 50 til 60 jarðskjálftar.

Þá dró úr virkninni er leið á daginn en jókst aftur skömmu fyrir miðnætti – þegar jarðskjálfti af stærð 3,5 varð. Eftir að virknin jókst aftur færðust skjálftarnir aðeins vestar.

Alls hafa mælst um 600 jarðskjálftar í hrinunni og þar af sex sem mældust yfir M3 að stærð. Tilkynningar hafa borist um að skjálftarnir hafi fundist í byggð – þar á meðal í Grindavík sem er um 12 km austan við virknina.

Hegðun skjálftanna hingað til sýnir að virknin getur dvínað og aukist svo skyndilega aftur. Aflögunarmælingar síðustu daga sýna þó engar skýrar breytingar sem myndu benda til þess að kvikuhreyfingar valdi jarðskjálftahrinunni.

Staðsetning skjálftanna

Myndin hér fyrir neðan sýnir gögn úr Skjálfta-Lísu, jarðskjálftavefsjá Veðurstofunnar.

Kortið sýnir staðsetningu jarðskjálfta síðan um hádegi í gær, sjá má tvær mismunandi þyrpingar.

Línuritið neðan við kortið sýnir uppsafnaðan fjölda jarðskjálfta frá því að hrinan hófst.

Grafið uppi hægra megin sýnir stærðir jarðskjálfta, yfirfarna jarðskjálfta í dekkri lit og sjálfvirkar stærðir í ljósari lit.

Súluritið hægra megin sýnir fjölda skjálfta á hverri klukkustund frá hádegi í gær.

Tafla/Veðurstofa Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert