Nú hafa 1.756 rampar verið settir upp við hinar ýmsu byggingar á vegum verkefnisins Römpum upp Ísland. Vígslu síðasta rampsins var fagnað fyrir framan Aðalbyggingu Háskóla Íslands í dag, um leið og efnt var til uppskeruhátíðar í Hátíðasal skólans vegna tímamótanna.
Markmið verkefnisins var að bæta aðgengi hreyfihamlaðra að byggingum með því að setja upp 1.000 rampa – sem síðan var aukið í 1.500. Heildarfjöldi rampa fór því langt fram úr þeim áætlunum.
Verkefnið hefur verið unnið á methraða frá því að það hófst haustið 2021 og er því nú lokið, ári á undan áætlun.
Þetta mikla átak hófst sem tilraunaverkefni undir yfirskriftinni Römpum upp Reykjavík árið 2021 en í því fólst að byggja 100 rampa í miðborginni. Þegar þeir voru fullbúnir á aðeins átta mánuðum varð ljóst að mögulegt væri að taka verkefnið lengra.
Árið 2022 var því ákveðið að byggja 1.000 rampa um allt land á fjórum árum. Var þeirri áætlun breytt í 1.500 rampa sama ár og svo var haldið áfram vegna brýnnar þarfar og nú eru ramparnir orðnir 1.756, ári á undan áætlun.
Verkefnið hefur haft jákvæð áhrif á lífsgæði margra. Með því hefur verið markvisst unnið að því að gera byggingar aðgengilegri fyrir alla. Fram að þessu hafa flestir rampanna verið byggðir við byggingar einkaaðila en síðustu áfangar verkefnisins hafa verið í samstarfi við opinbera aðila.
„Með því að vinna saman með ótal aðilum, alls staðar að úr samfélaginu, byggðum við 1.756 rampa. Það eru 1.756 staðir sem fólk sem notar hjólastól getur núna farið að borða, læra, hlæja, versla, kyssast, lifa. Gleðin var við stýrið alla ferðina og gleðin skilaði okkur miklu lengra en bjartsýnustu spár. Takk fyrir okkur,“ sagði Haraldur Ingi Þorleifsson, stofnandi verkefnisins þegar hann rakti sögu þess og áhrif í HÍ í dag.
Viðburðurinn hófst með vígslu síðasta og glæsilegasta rampsins við Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Tók þá við dagskrá í Hátíðasal HÍ hvar stuðningsaðilar og gestir komu saman og fögnuðu þessum merka áfanga.
Á hátíðinni flutti fjöldi fólks sem komið hefur að verkefninu með einum eða öðrum hætti ávörp, Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands, Eyjólfur Ármannsson samgöngu- og sveitastjórnaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, Dagur B. Eggertsson, alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík, Jón Atli Benediktsson háskólarektor, Bryndís Thors grunnskólanemi og Haraldur Ingi Þorleifsson, stofnandi verkefnisins og aðalbakhjarl.
Með tónlistatriði fóru KK, börn á leikskólanum Bakkaborg og félagar Lúðrasveitar Reykjavíkur.
„Aðgengismál eru grundvallarmál í háskólastarfinu því jafnt aðgengi að háskólamenntun felur jafnframt í sér jafnt aðgengi að tækifærum samfélags og atvinnulífs. Þannig eru aðgengismál í skólastarfi eitthvert áhrifamesta samfélagslega jöfnunartæki sem völ er á. Mér skilst að á háskólasvæðinu einu hafi verið gerðir heilir 210 rampar í þessu átaki, Römpum upp Ísland. Það munar um minna,“ sagði Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.
Rampurinn sem var vígður í dag við Aðalbyggingu HÍ er sá stærsti en á vefsíðunni rampur.is er að finna upplýsingar um alla rampa sem hafa verið reistir og annað sem rampagerðinni viðkemur.
Þrátt fyrir að framkvæmdum sé nú lokið heldur hópurinn sem stendur að verkefninu áfram að sinna sérverkefnum sem stuðla að bættu aðgengi, m.a. að innviðum í Lágafellslaug í samvinnu við Mosfellsbæ og að veitingastöðum við Geirsgötu í samvinnu við Reykjavíkurborg.
Þetta brýna verkefni hefði ekki orðið að veruleika án stuðnings fjölda fyrirtækja, stofnana og einstaklinga sem hafa lagt hönd á plóg. Meðal þeirra sem hafa stutt verkefnið eru: Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, Haraldur Þorleifsson, Össur, Deloitte, Brandenburg, Aton, Lex lögmannsstofa, BM Vallá, Icelandair, Orkan, ÞG Verk, Sjálfsbjörg, ÖBÍ, Reykjavíkurborg og fjölmagir aðrir eins og sjá má á rampur.is.