Kristbjörg Stephensen, formaður Dómarafélags Íslands, segir að með ummælum sínum um dómstóla hafi Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, lýst vantrausti á allt dómskerfið sem slíkt.
Segir hún það sérstaklega alvarlegt komandi frá ráðherra í ríkisstjórn Íslands. „Ráðherra ber að gæta sín umfram aðra og það á við um alla í hennar stöðu.“
mbl.is ræddi við Kristbjörgu rétt í þann mund sem hún gekk inn á aðalfund dómarafélagsins í dag. Aðspurð segir hún málið ekki verða tekið upp á fundinum sem sérstakur dagskrárliður og félagið líti svo á að því sé lokið með því að ráðherra hafi dregið ummæli sín til baka.
„Eitt af verkefnum félagsins er þó að standa vörð um sjálfstæði dómstóla og bregðast við ef þörf þykir á.“
Kristbjörg segir alltaf tekið alvarlega þegar eitthvað kemur frá ráðamönnum og segir grafalvarlegt þegar einn af æðstu handhöfum framkvæmdavaldsins lætur frá sér skoðun sem þessa.
„Við búum í réttarríki og allir eiga rétt á því að skjóta málum til dómstóla og fá skorið úr um réttindi sín og skyldur.
Það er mjög skiljanlegt að ekki séu allir sáttir við dómsniðurstöðu í sínu máli en það verður að gera þá kröfu að gagnrýni sé byggð á málefnalegum grunni og efnislegum eða lagalegum sjónarmiðum,“ segir Kristbjörg.
Kristbjörg segir þó að stök ummæli sem þessi, sem útskýrð séu þannig að þau séu sögð í hita leiksins þegar ráðherra sé full vonbrigða yfir niðurstöðu dómsmáls, geri auðvitað ein og sér ekki neitt sérstakt.
„Ef þetta fer hins vegar að heyrast oftar og það hefur ekkert verið laust við það – það hefur verið ýjað að því í umræðunni að einhver elíta sitji í þessum dómstólum og svo framvegis – ef svona umræða grasserar, jafnvel þó það sé rólega undir yfirborðinu, verður það til þess að höggva smám saman í traust almennings á dómstólum,“ segir Kristbjörg.
„Nú þegar ráðherrann hefur stigið fram, dregið ummælin til baka og útskýrt að þau hafi fallið í hita leiksins, þá held ég að við látum þar við sitja,“ bætir hún við.
Menn hljóta að ræða þetta mál á fundinum í dag?
„Þetta verður ekki bara aðalfundur, það verður líka staldrað hér við á eftir og menn tala auðvitað saman.
Hvort akkúrat þetta mál komi upp átta ég mig ekki á en það er ekki ólíklegt. Þetta er ný frétt og þú veist hvernig menn tala um fréttir.“