Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, segir mál Breiðholtsskóla „rosalega flókin“ og „kannski ekkert mikið um úrræði“.
Ráðuneytið sé þó að fara að stíga fast til jarðar í þessum málaflokki.
„Við vorum að samþykkkja samkomulag á milli sveitarfélaganna og ríkisins um kostnaðarskiptingu varðandi börn með þriðja stigs vanda,“ segir ráðherrann.
Morgunblaðið og mbl.is hafa fjallað ítarlega um ofbeldis- og eineltisvanda í skólanum síðustu vikur.
Foreldrar hafa kvartað sáran undan því að kerfið hafi ekki tekið vandann nógu föstum tökum og kennarar skólans hafa sömuleiðis sagt að ríkið og sveitarfélög þurfi að bregðast við.
Í viðtali við mbl.is í síðasta mánuði sagði Ásthildur Lóa það til skoðunar hvernig ráðuneytið gæti beitt sér.
„Við erum meðvituð um þetta, þetta er líka inni á borði ráðuneytisins, við erum að fylgjast með þessu, við erum að hjálpa til með lausnir,“ segir ráðherrann í dag.
Ásthildur segir málaflokkinn hafa verið vanræktan í langan tíma. „Svo ekki sé meira sagt.“
Hún tekur fram að hún sé aðeins búin að vera í ráðherrastól í þrjá mánuði en að ráðuneytið sé nú að takast á við vandann sem sé „gríðarlega stór og uppsafnaður“.
Verkefnið taki því sinn tíma.