Betri samgöngur hafa undirritað samning við VSÓ Ráðgjöf um hönnun fyrir Borgarlínuna sem nær yfir Suðurlandsbraut og Laugaveg að Hlemmssvæðinu meðtöldu.
Þetta segir í tilkynningu frá Betri samgöngum.
Um er að ræða umfangsmikið hönnunarverkefni þar sem unnið verður bæði að forhönnun og verkhönnun fyrir leið Borgarlínu á þessum kafla.
Kemur fram að með samningnum hefjist nú verkönnun, sem sé síðasta stig hönnunar fyrir framkvæmdir, á götukafla sem svari til um fjórðungs heildarlengdar fyrstu lotu Borgarlínunnar.
Felur hönnunarverkefnið í sér hönnun gatna, gatnamóta og stíga fyrir alla samgöngumáta, þar með talið Borgarlínuna, hjólandi og gangandi umferð.
Einnig skipulag umferðarstýringar og ljósastýringar fyrir umferð allra samgöngumáta.
Sömuleiðis hönnun Borgarlínustöðva og aðliggjandi svæða til að tryggja greiðan aðgang og gott skipulag.
Þá felur hönnunarverkefnið einnig í sér lýsingahönnun, blágrænar ofanvatnslausnir og umhverfismótun sem og samræmingu verkefna í samstarfi við sveitarfélög, veitufyrirtæki og aðra aðila sem eiga hagsmuna að gæta á svæðinu.
Í tilkynningunni kemur fram að áætlaður fjöldi vinnustunda við hönnunina sé 9.400 klukkustundir og hljóðar samningurinn upp á 240 milljónir króna.
Þá er heildarlengd verkefnisins um 3,7 kílómetrar og er fjöldi núverandi gatnamóta innan svæðisins 17, þar af 8 ljósastýrð.
Hönnunarsvæðinu er skipt í fjóra leggi, fjórir verkhlutar verða hannaðir í verkhönnun og þar af einn sömuleiðis í forhönnun.
„Hönnunin verður unnin í nánu samráði við Vegagerðina, Reykjavíkurborg og aðra hagsmunaaðila, með áherslu á að skapa öruggt umhverfi með auknum lífsgæðum, skilvirkt og sjálfbært almenningssamgöngukerfi.
Áætlað er að framkvæmdir fari síðan í útboð í áföngum á árunum 2025-2026 og að þær hefjist jafnt og þétt eftir því sem tilskilin leyfi liggja fyrir.
Borgarlínunni er skipt í 6 lotur. Fyrsta lota nær frá Hamraborg í Kópavogi að Krossmýrartorgi í Reykjavík og er 14,5 km. Áætlað er að hún verði fullbúin árið 2031 en fyrstu framkvæmdir hófust á Kársnesi í Kópavogi í janúar 2025 við gerð landfyllinga fyrir Fossvogsbrúl,“ segir í tilkynningunni.