Samningatækni Trumps algjörlega óútreiknanleg

Gagnlegt getur verið að horfa á raunveruleikaþættina The Apprentice til þess að skilja hvað Trump er að gera þegar kemur að málefnum Úkraínu. Þetta er mat Tryggva Hjaltasonar, hernaðar- og varnarmálasérfræðings.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítarlegu viðtali við Tryggva á vettvangi Spursmála.

Miskunnarleysið algjört

Vísar Tryggvi þar í fræga þætti þar sem viðskiptamaðurinn Donald Trump valdi sér lærlinga til starfa. Var hann þar þekktur af fullkomnu miskunnarleysi og tuddaskap sem mörgum sveið undan.

Á síðustu vikum hefur Trump unnið hörðum höndum að því koma Úkraínumönnum og Rússum að samningaborðinu til þess að ræða mögulegt vopnahlé milli ríkjanna tveggja sem borist hafa á banaspjótum allt frá því í febrúar 2022 og raunar allt frá árinu 2014 þegar Rússar innlimuðu Krímskaga.

Bendir Tryggvi á að Trump dragi úr og í. Hann hafi á tíma virst vera að taka algjörlega stöðu með Rússum. Hins vegar snýst pendúllinn hratt og um leið og Úkraínumenn lýstu sig reiðubúna til þess að koma að borðinu þá beindi Trump spjótum sínum að Rússum. Hefur hann auk þess hótað þeim síðarnefndu að hann muni knésetja þá með því að fella olíuverð á alþjóðamarkaði.

Samtalið um þetta mál má sjá í spilaranum hér að ofan.

Viðtalið við Tryggva er aðgengilegt í heild sinni í spilaranum hér að neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert