Beint: Fylgst með stöðu mála á Reykjanesskaga

Líklegt er að það dragi til tíðinda á Sundhnúkagígaröðinni fyrr …
Líklegt er að það dragi til tíðinda á Sundhnúkagígaröðinni fyrr en síðar. mbl.is/Hákon

Flest bend­ir til þess að átt­unda eld­gosið í gos­hrin­unni í Sundhnúkagígaröðinni, sem hófst í des­em­ber 2023, sé á næsta leyti en kvikan sem safn­ast hef­ur und­ir Svartsengi er orðin meiri nú en fyrir síðasta gos, sem lauk 9. desember. 

Hægt er að fylgjast með gangi mála í þremur vefmyndavélum mbl.is á staðnum. Er ein þeirra á Þorbirni en tvær eru staðsettar á Húsafelli, sem er austan megin við Grindavík.

„Kviku­söfn­un und­ir Svartsengi held­ur áfram og við met­um stöðuna þannig að áfram geti brot­ist út kviku­hlaup og gos hvenær sem er,“ sagði nátt­úru­vár­sér­fræðing­ur á Veður­stofu Íslands við mbl.is fyrr í morgun.

Þetta er lengsta kviku­söfn­un­ar­tíma­bil í þess­ari eld­gosa­hrinu á Sund­hnúkagígaröðinni en í dag eru 118 dag­ar frá því að síðasta eld­gos hófst þann 20. nóv­em­ber 2024.

Vefmyndavél mbl.is á Þorbirni:

Vefmyndavél á Húsafelli sem beint er að Sundhnúkagígasvæðinu:

Vefmyndavél með víðlinsu sjónarhorn frá Húsafelli. Nær yfir mögulegt eldgosasvæði og Grindavík:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert