Inga leggur niður stjórn Tryggingastofnunar

Inga Sæland félagsmálaráðherra.
Inga Sæland félagsmálaráðherra. mbl.is/Eyþór

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur ákveðið að leggja niður stjórn Tryggingastofnunar.

Stjórnir stofnana sem heyra beint undir ráðherra þykja almennt hafa óljósa stöðu og hlutverk og bent hefur verið á að hætta sé á óljósum ábyrgðarskilum stjórnar og forstöðumanns. Í stjórnsýsluúttektum Ríkisendurskoðunar á stofnunum sem heyra undir yfirstjórn ráðherra hafa reglulega komið fram athugasemdir við skipan slíkra stjórna þar sem stjórnskipuleg staða þeirra sé oft ekki nógu skýr, að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. 

Þá segir að Tryggingastofnunin hafi haft sérstaka stjórn frá árinu 2004. Skipun seinustu stjórnar hafi runnið út í nóvember eða við lok síðasta kjörtímabils. Millibilsástand hafi þó ekki skapast þar sem yfirstjórnarhlutverk ráðherra og ráðuneytis hennar sé skýrt lögum samkvæmt.

„Stjórn Tryggingastofnunar verður formlega lögð niður með lagabreytingu á Alþingi nú í vor. Þetta gefur færi á því að hagræða í rekstri Tryggingastofnunar og gæti hagræðingin numið á bilinu 10-12 m.kr. á ársgrundvelli. Lagabreytingin verður hluti af frumvarpi ráðherra til breytingar á lögum um almannatryggingar og fleiri lögum,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert