Mennta- og barnamálaráðherra segir ráðuneytið hafa unnið eins mikið og mögulegt er að úrlausn ofbeldismála í Breiðholtsskóla, sem Morgunblaðið og mbl.is hafa fjallað mikið um. Ráðuneytið hafi verið í samskiptum við Reykjavíkurborg og landsteymi á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Það væri þó kannski tilefni til þess í svona málum að endurskoða heimildir.
Þetta kom fram í svari Ásthildar Lóu Þórsdóttur, mennta- og barnamálaráðherra, við fyrirspurn Bryndísar Haraldsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um aðkomu ráðuneytisins að málefnum Breiðholtsskóla.
Spurði Bryndís meðal annars hvernig ráðherra hefði beitt sér og hvort fagráð ráðuneytisins hefði komið að málinu.
„En grunnskólarnir eru náttúrlega á ábyrgð sveitarfélaganna, það er bara þannig, og þar er líka búið að vera að vinna mikið í þessu. En þessi mál eru gríðarlega flókin. Það er bara ofboðslega erfitt að eiga við þetta. Þarna eru börn sem eru oft brotin og koma oft úr skelfilegum aðstæðum, án þess að ég geti tjáð mig neitt sérstaklega um þetta,“ sagði Ásthildur meðal annars í svari sínu.
Sagði hún að horfa þyrfti á þessi mál í heild. Þarna væri um að ræða börn sem glímdu við mikla erfiðleika og að börn sem brytu af sér ættu líka sín réttindi.
Bryndís benti á að heimilt væri að víkja nemanda ótímabundið úr skóla ef brot hans væru mjög alvarleg, hann hefði valdið öðrum skaða eða eignatjóni.
Þá spurði Bryndís hvort ráðherra teldi heimildir skólayfirvalda í ofbeldismálum ekki duga og vísaði til orða ráðherra frá því í febrúar þar sem hún sagðist ætla að skoða hvað hægt væri að gera og hvar heimildir ráðherra lægju.
Ásthildur sagði að skólaskylda væri á Íslandi og að ef barni væri vísað úr skóla þyrfti eitthvað annað úrræði að taka við. Það væri hins vegar ekki um auðugan garð að gresja þar.
„Svo er það að þegar við erum í svona málum þá er kannski alltaf tilefni til að endurskoða heimildir. En það eru þeir sem standa þessu nær og eru nær málinu sem sinna þessu frekar heldur en ráðuneytið sjálft, þó að það sé tilbúið og sé til ráðgjafar og sé að koma að málum með einhverjum hætti.“