Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir að í dómsmálaráðuneytinu sé verið að stíga skref sem miði að því að nýtt fangelsi verði byggt.
Þannig muni ófremdarástandi því sem teiknaðist upp á vakt Sjálfstæðisflokksins ljúka.
Þetta segir Þorbjörg í svari sínu við fyrirspurn Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins og forvera Þorbjargar í dómsmálaráðuneytinu í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag.
Guðrún benti í fyrirspurn sinni á að Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir hafi lagt grunninn að nýju öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni í stað Litla-Hrauns.
Fangelsið verði að norrænni fyrirmynd með áherslu á endurhæfingu og öryggi fanga og fangavarða og geti hýst allt að 100 fanga jafnframt sem mögulegt sé að bæta við 28 afplánunarrýmum.
Segir Guðrún að fullyrða megi að uppbygging fangelsisins að Stóra-Hrauni muni valda straumhvörfum í íslensku fullnustukerfi. Ekki aðeins bæta núverandi stöðu heldur einnig stuðla að betra samfélagi þar sem öllum verði boðið upp á réttlæti og möguleika á nýrri byrjun.
Þorbjörg sagði meðal annars í svari sínu við fyrirspurn Guðrúnar að forveri sinn væri vel læs á stöðuna í fangelsum landsins. Þá sagði Þorbjörg að fangelsismálin rétt eins og löggæslan og margir grundvallarmálaflokkar mættu afgangi síðustu ríkisstjórnar vegna þess að útlendingamálin tóku allan hennar tíma.
Benti Þorbjörg á dökka skýrslu Ríkisendurskoðunar sem sýndi að dómar, jafnvel í alvarlegum sakamálum á borð við alvarleg ofbeldismál og kynferðisbrotamál, fyrndust.
Þá sagðist Þorbjörg vera búin að vera í einhverjar sjö eða átta vikur í ráðuneytinu og að hún væri farin að skoða fangelsismálin og að forveri sinn í dómsmálaráðuneytinu þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að uppbygging sé ekki í kortunum.