Smáríki eins og Ísland eru ekki undanskilin öryggisógnum heldur þurfa þvert á móti að verja sig með sömu aðferðum og stærri ríki, segir Bjarni Már Magnússon, prófessor við lagadeild Háskólans á Bifröst, í aðsendri grein í blaðinu í dag.
Ef stigið væri það skref að setja á laggirnar íslenskan her segir hann það rökrétt að stofna sjálfstæða leyniþjónustu sem hann segir ómissandi þátt í varnarkerfi ríkja.
Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag.