Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra telur að koma þurfi tryggingum fyrir ákveðna hópa í fastari skorður.
Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins og fyrrverandi ráðherra meðal annars bæði innviða og fjármála.
Sigurður vildi vita til hvaða aðgerða ríkisstjórn Kristrúnar hyggist grípa vegna kaltjóna á túnum og tjóns garðyrkjubænda en tjón síðasta árs er metið á allt að 1,5 milljarð króna.
Hóparnir geta hvergi leitað stuðnings og sagði Sigurður Ingi í ræðu sinni það hafa tíðkast að ríkisstjórn hvers tíma tæki slík mál inn á sitt borð.
Kristrún sagðist meðvituð um stöðu mála og sagði miður að tryggingar grípi ekki þennan hóp.
Vildi hún beina fyrirspurninni með sértækari hætti inn í atvinnuvegaráðuneytið þar sem málið sé til skoðunar þar.
Þá skaut Kristrún föstum skotum að fyrri ríkisstjórn. Sagði hún verið að leggjast yfir hin ýmsu mál um þessar mundir í aðdraganda fjáraukalaga. Sagði forsætisráðherra síðustu ríkisstjórn hafa skilið eftir sig þó nokkurn fjölda og ákveðinn hala mála ófjármögnuð, sem ríkisstjórn sé fá í fangið. Eitthvað sem ekki var gert ráð fyrir í síðustu fjárlögum og þetta mál væri eitt þeirra.
Sigurður brást ókvæða við og spurði nokkuð önugur hvort þetta hafi ekki verið í fjárlögum. Svaraði hann eigin spurningu og sagði að augljóslega hafi þetta ekki verið í fjárlögum. Ekki hafi verið búið að spá fyrir um veður og vandræðagang bæði sumars og hausts þegar fjárlög voru lögð fram.
Hnýtti Sigurður við að það ætti ráðherra að vita eftir langa setu í fjárlaganefnd.
Kristrún svaraði því þá til að hún gerði sér fyllilega grein fyrir því að þegar fjárlög voru samin þá lá þetta ekki fyrir en hún benti á að umræða færi fram í þingsal. Það komi svo að 2. umræðu fjárlaga og það sé oft tilefni til að bæta stöðu og fá þinglega umfjöllun.
Sagðist hún einfaldlega hafa verið að benda á að það hafi verið tækifæri í aðdraganda jóla eða síðustu kosninga til þess að laga þetta.
Kallaði Sigurður Ingi þá fram í að ráðherra færi með rangt mál.
Kristrún lét það ekki á sig fá og endurtók að mál af þessu tagi væru til skoðunar hjá ríkisstjórn og hún ætli að fá að beina fyrirspurninni til atvinnuvegaráðherra sem sé með sértækar upplýsingar um málið.
Þá ítrekaði hún að lokum sinn vilja til að sjá málefni sem varða þennan hóp sett í almennari farveg til lengri tíma þannig að það þurfi ekki alltaf að fara í varasjóðinn þegar svona mál komi upp.