Dregið úr stuðningi og sjónum beint að mestu neyðinni

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eyþór

Dregið verður úr húsnæðisstuðningi til handa Grindvíkingum og sjónum beint að mestu neyðinni.

Þetta kom fram í máli Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra sem ræddi við blaðamenn í Stjórnarráðinu eftir að hafa kynnt aðgerðir ríkisstjórnarinnar í málefnum Grindavíkur og Grindvíkinga.

Segir Kristrún húsnæðisstuðning hafa verið ríflegan miðað við almennar húsaleigubætur og annað þess háttar. Heimili hafi fengið húsnæðisstuðning sem metið er sem svo að þurfi ekki lengur á honum að halda.

Segir hún stóran hluta Grindvíkinga nú kominn í varanlegt húsnæði og þar sé fjárhagurinn kannski ekki stærsta áskorunin heldur andlega heilsan.

„Svo vitum við um þessi í kringum 90 heimili sem standa verulega illa, eru ekki komin í varanlegt húsnæði og fókusinn verður á þau,“ segir Kristrún.

Almennari úrræði

Spurð hvort hún geti nefnt einhverjar krónur og aura í samhengi við kynntar aðgerðir segir Kristrún það ekki hafa verið reiknað út sérstaklega hversu mikið sparist enda sé það ekki útgangspunkturinn.

„Útgangspunkturinn er sá að við beinum sjónum að þeim sem eru í mestu neyðinni.“

Segir ráðherra að nú séum við að fara inn í eldsumbrotaskeið á Reykjanesinu í heild sinni og því verði að víkka sjóndeildarhringinn aðeins og beina úrræðum með almennari hætti en eingöngu að Grindvíkingum.

Ekki tímabært að endurbyggja

Segir í kynntum aðgerðum að ekki sé ráðlegt að hefja stórtæka endurreisn í Grindavík á þessum tímapunkti.

Um það segir Kristrún að enn þá sé hættustig viðvarandi samkvæmt almannavörnum. Það geti enn allt gerst og búist sé við eldgosi. Þannig sé einfaldlega ekki tímabært að mati stjórnvalda að fara í stórtæka enduruppbyggingu núna.

„Það breytir því ekki að eftir að þessar ákvarðanir hafa verið teknar núna munum við nota þær sviðsmyndargreiningar sem voru unnar til að fara í þétt samráð á næstu vikum og mánuðum með Grindavíkurbæ og með Grindvíkingum um hvernig möguleg enduruppbygging gæti litið út,“ segir Kristrún.

Hún tekur þó fram að engin tímasetning sé komin á hvenær það nákvæmlega hefst. Það sé háð hættustigi og mati almannavarna.

„Þessi umræða þarf að byrja að eiga sér stað. Við sýnum því skilning og það verður ráðist í slíka umræðu núna.

Það er fullkomin samstaða í ríkisstjórn um þetta og fólk áttar sig á því að við þurfum aðeins að skipta um gír.

Núna þegar við höfum tekið ákvörðun um þetta og við erum komin inn í svolítið annað ástand varðandi stuðningsaðgerðir þá gefst líka ráðrúm til að taka umræðu um hvað koma skal í Grindavík,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert