Hiti allt að tíu stig

Í dag verður fremur hæg suðlæg eða breytileg átt.
Í dag verður fremur hæg suðlæg eða breytileg átt. mbl.is/Árni Sæberg

Útlit er fyrir fremur hæga suðlæga eða breytilega átt í dag. Búast má við vætu af og til allvíða um land, hvergi er þó gert ráð fyrir mikilli úrkomu.

Austanlands verður yfirleitt þurrt og bjart veður. Hiti verður á bilinu 5 til 10 stig yfir daginn.

Á morgun má búast við svipuðu veðri en þá bætir í vind vestanlands síðdegis. 

Má búast við sunnan strekkingi með rigningu þar annað kvöld.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert