Írskur andi sveif víða yfir vötnum um helgina á mörgum af helstu öldurhúsum borgarinnar, en dagur heilags Patreks, verndardýrlings Íra, var haldinn hátíðlegur í gær, 17. mars.
Hátíðahöld vegna dagsins eru þekkt víða erlendis, þó einkum á Írlandi og í Bandaríkjunum, en dagurinn hefur einnig rutt sér til rúms hér á landi á síðustu árum.
Sumir skemmtistaðir sóttu um og fengu leyfi til þess að hafa opið lengur í gærkvöldi og hugðust þeir hafa opið til klukkan þrjú um nóttina. Þá var græni liturinn, einkennislitur heilags Patreks, mjög áberandi á þeim stöðum þar sem deginum var fagnað hvað ákafast.