Stílbragð Höllu vekur athygli

Halla Tómasdóttir forseti undirritar drengskapareið að stjórnarskrá lýðveldisins við embættistöku …
Halla Tómasdóttir forseti undirritar drengskapareið að stjórnarskrá lýðveldisins við embættistöku sína. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar

Nýir siðir koma með nýjum herrum segir einhvers staðar og sýnist það eiga vel við á Bessastöðum. Athygli vakti á 75 ára afmælistónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á dögunum að svo virðist sem Halla Tómasdóttir forseti Íslands noti ekki fullt nafn við undirskrift sína.

Halla sendi hljómsveitinni afmæliskveðju í dagskrárriti hátíðartónleikanna. Undir það ritar hún með eigin hendi. Athygli vekur að undirskrift forsetans er ekki fullt nafn hennar heldur styttri og ef til vill alþjóðlegri útgáfa en landsmenn hafa átt að venjast hjá forseta Íslands; Halla Tomas.

Hér má sjá undirskriftina.
Hér má sjá undirskriftina.

Morgunblaðið spurðist fyrir um þetta hjá forsetaembættinu.

Fyrirspurnin var svohljóðandi: „Er þetta almennt í störfum Höllu Tómasdóttur sem forseti Íslands? Notar hún þetta stílbragð þegar hún staðfestir lög? Eða er þetta aðeins tengt listum?

Gerði hún það þegar hún undirritaði drengskapareið að stjórnarskrá lýðveldisins við embættistöku sína?“

Svar barst frá forsetaembættinu í gær: „Undirskrift forseta eins og hún birtist við hátíðarávarpið í afmælistónleikaskrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands er sú undirskrift sem hún hefur notast við í áratugi og hefur haldið óbreyttri síðan hún var sett í embætti forseta.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert