Blaðamannafélag Íslands hefur sent bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis þess efnis að ákveði nefndin að taka fyrir mál í tengslum við fjölmiðlaumfjöllun um framferði starfsfólks Samherja á árinu 2021 þurfi nefndin að beina sjónum sínum að viðbrögðum lögreglu í málinu og rannsókn hennar á þeim sex blaðamönnum sem fengu réttarstöðu sakbornings.
Þetta segir í tilkynningu Blaðamannafélagsins (BÍ) til fjölmiðla.
Segir þar enn fremur að félagið telji tilefni til að árétta að hlutverk nefndarinnar sé að hafa eftirlit með störfum framkvæmdarvaldsins í þágu almennings. Nefndin hafi ekki eftirlit með fjölmiðlum og sé það ekki hlutverk hennar að hafa skoðun á efnistökum þeirra.
Hins vegar eigi nefndin að gæta að því að handhafar framkvæmdarvalds, þ.m.t. lögregla, haldi sig innan marka stjórnarskárinnar.
„Eins og Blaðamannafélagið hefur bent á leikur verulegur vafi á því að það hafi lögregla gert í þessu máli. Félagið telur því fulla ástæðu til að þessi þáttur málsins sæti athugun nefndarinnar í samræmi við það hlutverk sem hún fer með samkvæmt lögum,“ segir í tilkynningunni.
Þá kemur fram að formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndarinnar, Vilhjálmur Árnason, hafi sagt í viðtali á Bylgjunni síðasta föstudag að nefndinni hefði borist erindi þar sem óskað er eftir að hún skoði hvort vinnubrögð blaðamanna í málinu teldust brotleg gegn almennum hegningarlögum og siðareglum blaðamanna.
„Af þessu tilefni ítrekar Blaðamannafélagið að eftirlit með slíkum reglum heyrir á engan hátt undir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis auk þess sem hlutaðeigandi blaðamenn eru ekki opinberir starfsmenn og eiga ekki að þurfa að sitja undir því, frekar en aðrir einkaaðilar, að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fjalli um störf þeirra. Öðru máli gegnir um handhafa lögreglu- og ákæruvalds sem fara með opinbert vald og lúta eftirliti nefndarinnar.“
Þá liggi fyrir að umfjöllunin um framferði starfsfólks Samherja, Skæruliðadeildarinnar svokölluðu, byggðist á og laut að samskiptum sem blaðamenn hafi haft aðgang að. Í þeirri umfjöllun kom fram að starfsfólk Samherja hefði lagt á ráðin um að grafa undan trúverðugleika þeirra blaðamanna sem fjölluðu með gagnrýnum hætti um fyrirtækið. Hafi markmiðið með því virst hafa verið að draga úr áhrifum áhrifum þeirrar umfjöllunar og leiða athygli frá henni.
Segir BÍ í tilkynningu sinni að rannsókn lögreglu á blaðamönnunum hafi verið tilhæfulaus og beinst að þeirri háttsemi blaðamannanna að taka við upplýsingum frá heimildarmönnum um samfélagslega mikilvæg málefni og miðla þeim til almennings með ábyrgum hætti.
„Líkt og Blaðamannafélagið hefur margítrekað bent á felst ekki refsiverð háttsemi blaðamanna í því, heldur þvert á móti stjórnarskrárvarin frumskylda blaðamanna í lýðræðislegu þjóðfélagi.“
„Þótt lögreglurannsókninni hafi lokið með niðurfellingu voru áhrif hennar þau að draga athygli frá því sem blaðamennirnir höfðu fjallað um – alvarlegar ávirðingar um spillingu stórfyrirtækis og tilraunir þess til að stjórna opinberri umræðu um þær ávirðingar – og beina henni að blaðamönnunum sjálfum. Rannsóknin hafði því sömu áhrif og Skæruliðadeildin stefndi að. Því miður getur Blaðamannafélagið ekki annað séð en að ummæli formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í fjölmiðlum undanfarna daga stefni að sama markmiði – að gera blaðamenn sem fjallað hafa um samfélagslega mikilvæg mál tortryggilega og draga úr trúverðugleika umfjöllunar þeirra,“ segir í tilkynningunni.
Þá segist félagið áður hafa gagnrýnt lögreglurannsóknina á þeim grundvelli að í henni hafi falist óréttmætt inngrip í tjáningarfrelsi hlutaðeigandi blaðamanna. Undir þá gagnrýni hafi verið tekið á alþjóðlegum vettvangi og segir félagið framgöngu lögreglu verið á meðal þeirra atriða sem horft hefur verið til í störfum alþjóðlegra samtaka blaðamanna við mat á tjáningarfrelsi og starfsskilyrðum blaðamanna hér á landi.
„Fyrir liggur að staða Íslands í alþjóðlegum samanburði hefur farið versnandi að þessu leyti undanfarin ár. Nú er svo komið að Ísland, eitt Norðurlanda, er ekki meðal þeirra ríkja þar sem tjáningarfrelsi blaðamanna er talið tryggt með fullnægjandi hætti. Sker Ísland sig verulega frá öðrum Norðurlöndum að þessu leyti. Sem stendur er Íslandi raðað í 18. sæti á lista samtakanna Blaðamenn án landamæra yfir þau ríki þar sem tjáningarfrelsi blaðamanna er best tryggt. Önnur Norðurlönd skipa ásamt Hollandi 1.-5. sæti listans.“
Segir BÍ leiðina til þess að snúa þeirri þróun við liggi ekki í gegnum rannsókn stjórnskipunar- og eftirlitsnefndarinnar á störfum einstakra blaðamanna vegna fréttaumfjöllunar sem hafi aldrei verið hrakin eða neinar efnislegar athugasemdir gerðar við.
„Leiðin að því að styrkja stöðu tjáningarfrelsis – og þar með lýðræðis – liggur í því að rannsaka þá framgöngu lögreglu gagnvart blaðamönnum sem bent hefur verið á sem eina af ástæðum fyrir versnandi stöðu tjáningarfrelsis blaðamanna á Íslandi á undanförnum árum. Taki stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hlutverk sitt alvarlega hljóta nefndarmenn í nefndinni að beina sjónum sínum að þessu aðalatriði málsins.“