Það er „alveg út í bláinn“ að Halla Tómasdóttir forseti Íslands noti ekki fullt nafn við undirskrift sína. Þetta er mat Guðrúnar Kvaran, prófessors emeritus í íslensku við Háskóla Íslands, en Morgunblaðið leitaði viðbragða hennar við frétt blaðsins um undirskrift forseta.
Í fréttinni kom fram að athygli vakti meðal gesta á 75 ára afmælistónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands að í ávarpi Höllu í dagskrárriti tónleikanna ritaði hún undir „Halla Tomas“ í stað þess að nota fullt nafn sitt. Þau svör fengust frá forsetaembættinu að Halla hefði notað umrædda undirskrift um áratugaskeið og haldið henni óbreyttri eftir að hún tók við embætti forseta.
Guðrún Kvaran, sem auk starfa sinna við HÍ og Árnastofnun hefur til að mynda verið formaður Íslenskrar málnefndar og formaður mannanafnanefndar, furðar sig á athæfi forseta Íslands.
„Mér finnst mjög mikilvægt að Íslendingar skrifi nöfn sín á eðlilegan hátt. Þá á hún nú ekki að skammast sín fyrir að vera dóttir einhvers, hún á bara að skrifa „Tómasdóttir“,“ segir hún.
Guðrún segir jafnframt að þau svör sem fengust frá forsetaembættinu um að Halla hafi notast við umrædda undirskrift í áratugi séu engin réttlæting.
„Það er ekkert betra. Hún var mikið í erlendum samskiptum og þá var kannski erfitt að hafa „dóttir“. En hún býr á Íslandi og er að skrifa undir íslenskt plagg. Þá á hún að skrifa undir „Halla Tómasdóttir“ og ekkert annað.“