Heiða Björg ræður aðstoðarmann

Katrín M. Guðjónsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður borgarstjóra.
Katrín M. Guðjónsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður borgarstjóra. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hefur ráðið Katrínu M. Guðjónsdóttur sem aðstoðarmann sinn.

Katrín hefur störf á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara í Ráðhúsinu í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu borgarinnar.

Katrín er viðskipta- og markaðsfræðingur með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands. Hún hefur stýrt markaðsmálum hjá fyrirtækjum á borð við N1, Innnes ehf., Skeljung og Men&Mice.

Þá hefur Katrín verið framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi Vestra frá árinu 2022.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert