Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, spurði á þingi í dag hvort ekki þyrfti að fara fram ítarleg rannsókn eða stjórnsýsluúttekt á því ófremdarástandi sem hefði lengi ríkt í málefnum barna með margvíslegan vanda á Íslandi. Gagnrýndi hann aðgerðaleysi fyrri ríkisstjórnar og fór hörðum orðum um þróun mála frá árinu 2017.
Sagði Jón að málaflokkurinn væri orðinn svo flókinn og þvælukenndur að það væri þrautinni þyngra að setja sig inn í hann.
„Frá 2017 hefur fjölmörgum úrræðum fyrir börn verið lokað og ekkert sem tekur við nema einhverjar furðulegar fjölmiðlauppákomur þar sem ráðherra og embættismenn vígja og opna jafnvel ný úrræði fyrir börn sem síðan svo taka aldrei til starfa. Gunnarsholt á Rangárvöllum, Hamarskot í Flóahreppi, Blönduhlíð í Mosfellsbæ, sem opnað var bara fjórum dögum fyrir kosningar, að ógleymdu hús í Garðabæ sem átti að rísa 2018,“ sagði Jón þegar hann taldi upp þær breytingar sem hafa verið í gangi síðustu ár.
Sagði hann jafnframt að mjög erfitt hafi verið að fá upplýsingar um stöðu málaflokksins og að bent væri á hvern annan. Hafa Morgunblaðið og mbl.is fjallað ítarlega um þessa stöðu og ósamræmi í svörum milli ráðuneyta, líkt og farið er yfir í meðfylgjandi fréttaskýringu og fjölda frétta þar á undan.
„Foreldrar og aðstandendur fá misvísandi upplýsingar og innantóm loforð um hjálp fyrir börnin sín sem svo aldrei kemur. Stuðlar eru óstarfhæfir, húsnæðið úr sér gengið og álag þar er óásættanlegt. Umboðsmaður barna hefur lýst yfir neyðarástandi reglulega frá árinu 2018,“ sagði Jón enn fremur áður en hann rifjaði upp tvo hörmungaratburði á síðustu mánuðum.
Annars vegar nefndi hann að 16 ára drengur hafi ráðist á fimm ungmenni og myrt 17 ára stúlku á Menningarnótt. Hins vegar að 17 ára drengur hafi látið lífið í eldsvoða á Stuðlum í október.
„Það er til reglugerð um afplánun sakhæfra barna frá 2015. Samkvæmt henni skulu börn afplána á vegum barnaverndaryfirvalda en ekki í fangelsi. Ekkert slíkt úrræði er til,“ sagði Jón og bætti því við að ríkisstjórnin væri nú að reyna að vinda ofan af þessu og móta aðgerðir sem yrðu kynntar fljótlega.
„En eftir að hafa rætt við fjölda fólks, núverandi og fyrrverandi starfsfólk, í þjónustu við börn hjá hinum ýmsu stofnunum, átt fundi með foreldrum, kynnt mér skýrslur, lesið greinar í fjölmiðlum og þá spyr ég mig hvort ekki þurfi að fara fram ítarleg rannsókn á þessu ömurlega ferli öllu saman. Stjórnsýsluúttekt með það að markmiði að útskýra hvað fór úrskeiðis, hver beri ábyrgðina og svo í framhaldinu innleiða endurbætur og endurskipulag á þessum mikilvæga málaflokki til að fyrirbyggja að svona harmleikur geti aldrei endurtekið sig aftur,“ sagði hann að lokum.