„Þetta er risasigur“

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra segir breytt fyrirkomulag koma …
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra segir breytt fyrirkomulag koma til með að breyta öllu fyrir börn málaflokksins. mbl.is/Eyþór

„Ég ætla bara ekki að lýsa því hvað ég er ánægð með að við séum búin að skrifa undir þetta samkomulag,“ segir Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, um undirritun samkomulags þess efnis að ríkið muni taka við framkvæmd og ábyrgð á fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem búsett eru utan heimilis.

Þá segir hún breytt fyrirkomulag koma til með að breyta öllu fyrir börn málaflokksins, þau muni vera í meðferð, ekki bara í vistun. Einnig vonast hún til þess að hægt verði að samnýta starfsmenn og sérfræðinga, sem muni skila sér í hagræðingu á rekstri.

Þjónusta við börn með þriðja stigs vanda hefur að sögn Ásthildar hvílt mjög þungt á sveitarfélögunum, en ríkið taki við henni að fullu 1. janúar næsta árs.

Hefur staðið lengi til

Hvað þýðir þetta raunverulega, hvaða breytingar munum við sjá?

„Í fyrsta lagi er ríkið að taka að sér þessa þjónustu við börn sem eru með þriðja stigs vanda, sem hefur hvílt mjög þungt á sveitarfélögunum. Þannig að við erum að yfirtaka það.

Svo felur þetta það í sér að við tökum við þessu að fullu 1. janúar á næsta ári, þannig að nú hefst uppbygging sem að hefur staðið lengi til, í takt við það sem gerð var áætlun um í skýrslu frá árinu 2023.

Núna hefst sú uppbygging. Það getur verið að einhverjar breytingar verði gerðar á henni, núna þegar við förum að skoða hvernig þetta lítur út, en í grunninn er það þessi uppbygging sem hefst.“

Breytir öllu fyrir börnin

Hvaða beinu afleiðingar hefur þetta breytta fyrirkomulag fyrir börnin?

„Að sjálfsögðu breytir þetta öllu fyrir börnin. Við erum að tala um vistunarheimili fyrir börnin, við erum líka að tala um hagræðingu í rekstri – hún gerist þegar við erum komin með þetta í okkar hendur, erum komin með meðferðarplássin sem við þurfum og kannski einhverja kjarna þar sem hægt er að samnýta starfsmenn og sérfræðinga og annað þess háttar.

Börnin munu vera í meðferð hjá okkur, ekki bara í vistun ef svo má segja. Þannig að þetta mun breyta alveg gríðarlega miklu og við munum fara langt með þetta, ég trúi að við verðum komin langt með þetta núna bara á þessu ári. En af því að við þurfum að taka við þeim börnum sem að nú þegar eru í vistun, þann 1. janúar á næsta ári.

Svo mun þróunin halda áfram, en uppbyggingin er hafin, það fer ekkert á milli mála. Þetta er risasigur, þetta er búið að sitja á hakanum í einhver ár. Allavega var því fyrst flaggað að í þetta stefndi árið 2011. Ég ætla bara ekki að lýsa því hvað ég er ánægð með að við séum búin að skrifa undir þetta samkomulag.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert