Upplýsingar fyrir almenning um kílómetragjaldið

Vegir okkar allra var opnuð árið 2023 í upphafi fyrsta …
Vegir okkar allra var opnuð árið 2023 í upphafi fyrsta skrefs innleiðingar kílómetragjalds sem tók gildi árið 2024 fyrir rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla. mbl.is/Styrmir Kári

Vegir okkar allra, upplýsingasíða fyrir almenning um innleiðingu stjórnvalda á nýju kerfi sem styður fjármögnun vegakerfisins, hefur verið uppfærð í samræmi við frumvarp fjármála- og efnahagráðherra um kílómetragjald sem nú er til umfjöllunar á Alþingi.

„Hvað er kílómetragjald og hvaða áhrif hefur það á almenning? Svör við þessum spurningum og mörgum öðrum auk almennra upplýsinga um kílómetragjald og uppfært kolefnisgjald er að finna á upplýsingasíðunni Vegir okkar allra,“ segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. 

Þar segir enn fremur að innleiðing kílómetragjalds í stað olíu- og bensíngjalda, sem falli niður, sé stærsta breyting sem gerð hafi verið á fjármögnun vegakerfisins í áratugi og hún muni hafa áhrif á flesta landsmenn með einum eða öðrum hætti. Því sé mikilvægt að almenningur hafi aðgang að upplýsingum um þessa breytingu og svörum við helstu spurningum sem kunna að vakna.

„Vegir okkar allra var opnuð árið 2023 í upphafi fyrsta skrefs innleiðingar kílómetragjalds sem tók gildi árið 2024 fyrir rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla. Auk almennra upplýsinga um hvernig nýja kerfið virkar fyrir alla bíla og hvers vegna þarf að taka það upp er þar að finna svör við helstu spurningum sem komið hafa frá almenningi,“ segir jafnframt í tilkynningunni. 

Dæmi um spurningar sem svarað er á síðunni eru, auk margra annarra:

  • Hafa breytingarnar áhrif á dæluverð bensíns og dísilolíu
  • Hvaða áhrif hefur nýtt kerfi á landsbyggðina
  • Hvaða áhrif hefur nýtt kerfi á tekjulægri hópa?
  • Verður greitt eftir þyngd?
  • Hefur nýja kerfið áhrif á orkuskipti?
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert