Ásdís hjólar í störf Heiðu sem formanns

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs. mbl.is/Sigurður Bogi

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, segir að meintur trúnaðarbrestur fráfarandi formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) í kjaraviðræðum kennara hafi verið grafalvarlegur. Hún hefði stutt tillögu um vantraust á hendur formanni hefði Heiða ekki ákveðið að segja af sér.

Þetta kom fram í ræðu hennar á Landsþingi SÍS.

Heiða Björg Hilmisdóttir segir af sér embætti formanns SÍS í dag, en mikil óánægja hefur verið með hennar störf að undanförnu meðal hóps sveitarstjóra í sambandinu.

Morgunljóst að það hefur verið trúnaðarbrestur“

Ásdís byrjaði á því að segja að hlutverk formanns væri að tala fyrir hagsmunum allra sveitarfélags sambandsins.

„Það er alveg ljóst að fráfarandi formaður hefur ekki gegnt þessu hlutverki. Og ég held að öllum er morgunljóst að það hefur verið trúnaðarbrestur og trúnaðarbrestur var kominn milli stjórnar, formanns sem og sveitarfélaga í þessari deilu,“ sagði Ásdís og hélt áfram:

„Formaður hefur sem betur fer ákveðið að stíga niður og svo hefði ekki verið hefði ég svo sannarlega stutt tillögu þess efnis hvað varðar vantraust á formanninn. Mér finnst þetta grafalvarlegt mál,“ sagði Ásdís.

Vantrauststillaga beið Heiðu

Fyr­ir landsþingi beið til­laga sem Morg­un­blaðið hef­ur heim­ild­ir fyr­ir að tug­ir sveit­ar­stjóra um land allt, bæði óháðir og flokks­bundn­ir, hafi ætlað að leggja fram um að Heiða viki sem formaður Sam­bands­ins vegna trúnaðarbrests við stjórn­ina og eft­ir at­vik­um sveit­ar­fé­lög.

Í kjaraviðræðum kennara og sveitarfélaga var lögð fram innanhústillaga af ríkissáttasemjara sem stjórn sambandsins var mótfallin.

Heimildarmenn Morgunblaðsins telja víst að Heiða Björg hafi lagt á ráðin um það að leggja blessun sína yfir tillögu ríkissáttasemjara í trássi við vilja stjórnar.

Tillögu vísað til stjórnar

Á þinginu í dag var meðal annars rædd tillaga þess efnis að hægt verði að víkja formanni frá störfum áður en kjörtímabili hans lýkur.

Tillagan var ekki samþykkt heldur vísað til stjórnar ásamt breytingu á samþykktum. Það var við umræður á þessari tillögu sem Ásdís tók til máls.

„Ég vil aldrei aftur þurfa horfa aftur upp á það að formaður sambandsins tali opinberlega gegn vilja stjórnar og beiti sér beinlínis í aðstöðu sinni gegn hagsmunum sambandsins,“ sagði Ásdís.

Heiða hefur hafnað því að hafa lagt blessun sína yfir tillögu ríkissáttasemjara en hún sagði þó opinberlega að hún styddi tillöguna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert