Ásmundur Einar fundaði með Ásthildi Lóu

Ásthildur Lóa og Ásmundur Einar eftir fundinn þeirra á föstudag.
Ásthildur Lóa og Ásmundur Einar eftir fundinn þeirra á föstudag. Ljósmynd/Ásmundur Einar

Ásmundur Einar Daðason segist hafa átt góðan fund með arftaka sínum, Ásthildi Lóu Þórsdóttur mennta- og barnamálaráðherra, á föstudag.

Hann segir hana eiga stórt hrós skilið og óskar henni til hamingju með mikilvægan áfanga í málefnum barna.

Vísar hann þá til ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um að taka við fram­kvæmd og ábyrgð á fjár­mögn­un sér­hæfðrar þjón­ustu við börn með fjölþætt­an vanda sem bú­sett eru utan heim­il­is. Samkomulag þess efnis var undirritað í gær.

Ásmundur segir Ásthildi Lóu hafa greint honum frá samkomulaginu í trúnaði á fundi þeirra fyrir helgi.

Þetta kemur fram í færslu Ásmundar á Facebook.

Nýr ráðherra fari vel af stað

Í færslunni segist Ásmundur ekki hafa sett inn neitt sem tengist stjórnmálum fyrir jól en nú finni hann fyrir þörf til að tjá sig.

„Má til með að óska öllum þeim sem að þessu hafa komið innilega til hamingju. Það er vel gert að þetta sé eitt af fyrstu stóru málum ríkisstjórnarinnar í málefnum barna. Mér finnst nýr ráðherra fara vel af stað og það er mikilvægt að loknum þessum áfanga fái hún fullan stuðning við að framfylgja þessu verkefni á næstu misserum,“ segir í færslu Ásmundar.

Hann segist hafa fulla trú á því að við getum verið bjartsýn. Segir hann að forystufólk ríkisstjórnarinnar og fjármálaráðherra séu að leggja ríka áherslu á að forgangsraða í þágu barna og ungmenna.

„Kraftmikil yfirlýsing forsætisráðherra af þessu tilefni undirstrikar sterkt þá áherslu. Ríkisstjórnin á hrós skilið fyrir þennan áfanga og mér finnst við eiga að viðurkenna og segja það þegar vel er gert. Þau er að fara vel af stað í þessum málum. Til hamingju og áfram gakk!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert