Reykjavíkurborg áformar að endurnýja um 5% af gatnakerfi borgarinnar á þessu ári, eða um 21 km. Malbikað verður fyrir milljarð í sumar og til viðbótar farið í malbiksviðgerðir fyrir 200 milljónir. Gert er ráð fyrir að hægt verði að hefja framkvæmdir við fræsingu og yfirlagnir í maí og að þeim ljúki í september.
Talsvert hærra hlutfall gatna verður endurnýjað á þessu ári en í fyrra, en þá voru aðeins 15,1 km endurnýjaðir, eða 3,5% af götum borgarinnar. Hafði hlutfallið hins vegar ekki verið jafn lágt síðan árið 2014. Á meðfylgjandi grafi má sjá hvernig þróunin hefur verið síðustu 20 árin.
Samanburður á endurnýjun slitlags milli ára.
Graf/Reykjavíkurborg
Í tilkynningu frá borginni kemur fram að hlutfall gatna sem flokkist í slæmu ástandi, eða þar sem líftími þeirra er liðinn, hafi lækkað úr 15% síðastliðin ár niður í 5% nú í janúar. Hins vegar sé um þriðjungur gatna borgarinnar sem á 1-5 ár eftir af líftíma sínum. Á undanförnum árum hefur svo hlutfall gatna í góðu ástandi haldist sambærilegur eða á bilinu 58-66%, en það eru götur sem eiga meira en fimm ár eftir af líftíma sínum.
Meðfylgjandi götur eða götukaflar verða í forgangi í sumar samkvæmt tilkynningunni:
- Akurgerði (Sogavegur - Breiðagerði)
- Austurbrún
- Álfabakki
- Álmgerði (Stóragerði - Furugerði)
- Ásvallagata, Bakkastaðir nr. 1-75 ( Bakkastaðir aðalgata - inn í enda)
- Barmahlíð
- Barónstígur
- Bergstaðastræti
- Berjarimi (Berjarimi nr. 65 - inn í enda)
- Bjargarstígur
- Borgartún - hringtorg v/Sóltún
- Borgavegur - Smárarimatorg
- Borgavegur (Langirimi - Víkurvegur)
- Borgavegur (Sóleyjarrimi - Spöng)
- Borgavegur/Móavegur
- tengivegur Brávallagata nr. 40-50
- Breiðagerði (Mosgerði - Sogavegur)
- Breiðhöfði (Straumur - Bíldshöfði)
- Bústaðavegur (Grensásvegur - Réttarholtsvegur)
- Bæjarháls (Rofabær - Höfðabakki) st. 15 -248
- Dvergshöfði (Höfðabakki - Höfðabakki nr. 3)
- Fannafold nr. 134-156
- Fannafold nr. 158-170
- Fannafold nr. 225-251
- Félagstún að Höfða
- Fjallkonuvegur (Funafold - Logafold)
- Fjallkonuvegur (Logafold - Gagnvegur)
- Fríkirkjuvegur (Lækjargata - Fríkirkja)
- Frostafold nr. 1-25
- Frostafold nr. 40-62 og 165-187
- Furugerði (Álmgerði - Furugerði nr. 7)
- Gamla Hringbraut (Vatnsmýrarvegur - Laufásvegur)
- Golfskálavegur
- Grænlandsleið
- Gvendargeisli
- Helgugrund nr. 1-10
- Hellusund
- Hesthúsavegur (Víðidalur)
- Hofsgrund
- Hólastekkur (Hamrastekkur)
- Hverfisgata (Frakkastígur - Vitastígur)
- Hverfisgata (Ingólfsstræti - Smiðjustígur)
- Hverfisgata (Vatnsstígur - Frakkastígur)
- Hverfisgata (Klapparstígur - Vatnsstígur)
- Jaðarsel (Kögursel - Klyfjasel)
- Jaðarsel (Kambasel - Útvarpsstöðvarvegur)
- Jörfagrund nr. 1-14
- Klukkurimi (Langirimi - inn í enda)
- Korpúlfsstaðavegur (Víkurvegur - Garðastaðir)
- Kringlan hringur (Rampur að Miklabraut - suður að hraðahindrun)
- Langagerði nr. 30-46
- Langagerði nr. 94-112
- Laugarnesvegur (Kirkjusandur - Kleppsvegur)
- Laugateigur (Gullteigur - Reykjavegur)
- Lindarvað (Bugða - inn í enda)
- Ljárskógar (10-16, 1-7, 2-8, 9-15)
- Logafold (116-122, 55-75)
- Mosavegur (Skólavegur - að þrengingu)
- Móavegur (Vættarborgir - inn í enda)
- Nauthólsvegur (Nauthólsvík - inn í botn)
- Norðlingabraut (Árvað - Helluvað)
- st. 3 - 690 Norðurfell (Vesturberg - Eddufell)
- Ofanleiti (Efstaleiti - Neðstaleiti)
- Rafstöðvarvegur (rampi frá Vesturlandsvegi - Rafstöðvarvegur nr. 1)
- Rauðalækur (Bugðulækur - Dalbraut ) st. 245 – 558
- Reykjavegur - hringtorg við Engjaveg / Sigtún
- Reykjavegur (Sundlaugavegur - Kirkjuteigur)
- Reykjavegur við Laugardalsvöll
- Rofabær/Selásbraut (Fylkisvegur - Hraunsás)
- Skeiðarvogur (Mörkin - Suðurlandsbraut)
- Skildingatangi (Skildinganes - inn í botn)
- Skólabrú, (Lækjargata - Kirkjutorg ) st. 16 – 46
- Sogavegur (Sogavegur nr. 164 - Tunguvegur)
- Sogavegur (Tunguvegur - Sogavegur nr. 224)
- Spöngin (hringtorg við Mosaveg)
- Stangarholt nr. 3-9
- Steinagerði (Breiðagerði - inn í enda)
- Stekkjarbakki til Breiðholtsbrautar (Arnarbakki - Breiðholtsbraut)
- Stóragerði (Brekkugerði - Álmgerði)
- Strýtusel (10-22, 1-7, 2-8, 9-15)
- Suðurgata (Brynjólfsgata - Hringbraut
- Suðurgata (Hjarðarhagi - Brynjólfsgata)
- Suðurlandsbraut (Reykjavegur - Kringlumýrarbraut)
- Suðurlandsbraut (Kringlumýrarbraut - Hallarmúli)
- Sæbraut (gatnamótasvæðið við Faxagötu og akrein til vesturs að Hörpu)
- Sævarhöfði, rampi frá Gullinbrú
- Teigagerði (Breiðagerði - inn í enda)
- Túngata
- Urðarbrunnur (Skyggnisbraut - Úlfarsbraut)
- Vesturgata
- Vesturhólar (Haukshólar - Norðurhólar)
- Viðarrimi nr. 29-65
- Vonarstræti (Lækjargata - Tjarnargata)
- Þönglabakki (Stekkjarbakki - bílakjallara)