Hafna því að erindið hafi lekið úr ráðuneytinu

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. mbl.is/Karítas

Forsætisráðuneytið hafnar því að hafa rofið trúnað í máli sem varðar Ásthildi Lóu Þórðardóttur, fráfarandi barna- og menntamálaráðherra.

Ásthildur sagði af sér í kvöld í kjölfar þess að RÚV greindi frá því að hún hefði átt í ástarsambandi við 15 ára dreng þegar hún var 22 ára. Ári seinna áttu þau barn saman.

Enn fremur kom fram í frétt RÚV að erindi hefði verið sent á forsætisráðuneytið og það hafi verið heitið trúnaði. Aftur á móti fór Ásthildur Lóa heim til manneskjunnar sem sendi erindið og reyndi að hringja í hana.

Aðstoðarmaður Kristrúnar talaði við aðstoðarmann Ásthildar

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu kemur fram að með tölvupósti 9. mars hafi forsætisráðherra borist beiðni um 5 mínútna fund án þess að fundarefnið væri tilgreint. Þann 11. mars barst aftur tölvupóstur frá sama aðila þar sem fyrri ósk um fund var ítrekuð. Þar var tekið fram að erindið varðaði mennta- og barnamálaráðherra og að það væri í góðu lagi að mennta- og barnamálaráðherra sæti fundinn.

Ólafur Kjaran, aðstoðarmaður Kristrúnar, hafði svo samband við aðstoðarmann mennta- og barnamálaráðherra og spurði hvort hún þekkti til sendanda eða vissi um hvað málið snerist, samkvæmt forsætisráðuneytinu.

„Svo var ekki. Í kjölfarið var þess óskað með tölvupósti að sendandi myndi skýra erindið frekar. Í kjölfarið barst tölvupóstur þar sem gerð var nánari grein fyrir tilefni fundarbeiðninnar,“ segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Erindið með upplýsingunum barst aðfaranótt 13. mars

Anna Rut Kristjánsdóttir, aðstoðarmaður ríkisstjórnar, segir í samtali við mbl.is að aðfaranótt 13. mars hafi forsætisráðuneytinu svo borist erindi þar sem erindi fundarins er nánar tilgreint og þar eru viðkvæmar trúnaðarupplýsingar.

„Önnur samskipti hafa ekki átt sér stað milli forsætisráðuneytis og mennta- og barnamálaráðuneytis um málið fyrr en í dag. Fullyrðingar sem fram koma í frétt RÚV um að forsætisráðuneytið hafi rofið trúnað í málinu eiga ekki við rök að styðjast,“ segir í tilkynningu RÚV.

Ósvaraðar spurningar

Aftur á móti vekur athygli að í viðtali RÚV við Ásthildi í kvöld kveðst hún ekki hafa kannast við sendandann.

Vekur það upp spurningar á borð við það af hverju Ásthildur hafði samband við sendandann ef hún vissi ekki erindið og fundarboðið var stílað á forsætisráðherra, ekki barnamálaráðherra. 

Ekki hefur náðst í Kristrúnu Frostadóttur, Ólaf Kjaran né Ásthildi Lóu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert