Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir að ný úrræði muni taka við þeim einstaklingum í kjölfar þess að geðendurhæfingarúrræðinu Janusi verður lokað í sumar. „Ekkert af þessum ungmennum mun verða þjónustulaust þegar þessum samningi lýkur við Janus,“ sagði Inga í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.
Það tók Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, málið upp er hann segir að það sé þyngra en tárum taki að horfa upp á ungt fólk sem glímir við fjölþætt geðræn vandamál missa úrræði á borð við Janus endurhæfingu og þá lífsbjörg sem slíku úrræði fylgi.
„Janus endurhæfing neyðist til að loka dyrum sínum 1. júní næstkomandi vegna þess að stjórnvöld hafa sagt upp samningi við úrræðið. Unga fólkið missir þannig aðgengi sitt að einstaklingsmiðaðri geðendurhæfingu undir handleiðslu sérhæfðra fagaðila. Þetta eru einstaklingar sem kerfið hefur þegar brugðist. Foreldrar og aðstandendur hafa lýst yfir þungum áhyggjum og benda á að mörg þessara ungmenna hafi ekki á annan stað að leita og nú þegar hafa hátt í 2.400 manns skrifað undir áskorun til ríkisstjórnarinnar um að hverfa frá þessari ákvörðun.“
„Ætlar ríkisstjórnin að svipta Janus endurhæfingu rekstrargrundvelli sínum og skilja unga viðkvæma einstaklinga eftir í lausu lofti?
Virðulegi forseti. Hvernig getur ráðherra horft upp á þetta án þess að grípa inn í,“ spurði Jens.
Inga kvaðst skilja þær áhyggjur sem hafi komið fram. Staðreyndin væri þó sú að þær væru óþarfar „vegna þess að það mun aldrei koma til þess að þessir einstaklingar sem þurfa á hjálp að halda muni falla á milli skips og bryggju, vegna þess að hér er unnið að nýjum úrræðum. Það er VIRK starfsendurhæfingarsjóður sem greiðir 75% hlutinn til Janusar og það er VIRK starfsendurhæfingarsjóður sem sagði upp þeim samningum. Það er heilbrigðisráðuneytið sem hefur með þessi mál að gera, umfram mig, hvað lýtur að starfsendurhæfingunni en ég mun ekki láta mitt eftir liggja að koma til móts við að tryggja að þessir ungu einstaklingar sem nauðsynlega þurfa á hjálp að halda, og það dreg ég enga fjöður yfir, fái þá hjálp sem þeir þurfa á að halda,“ sagði Inga.
Hún bætti við að hvað Janus varðaði sérstaklega þá hefði það ekki verið á hennar borði.
„Ég ítreka að 75% af samningnum hefur verið á höndum VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs og heilbrigðisráðuneytið hefur með hitt að gera. En ekkert af þessum ungmennum mun verða þjónustulaust þegar þessum samningi lýkur við Janus, það er hins vegar það sem ég treysti mér til þess að heita.“
Jens þakkaði Ingu fyrir svarið en benti á að það væri skammur tími til stefnu. Hann spurði hvernig ætti að tryggja þjónustuna við einstaklingana.
„Það eina sem liggur fyrir er að til stendur að ráðast í vinnu við að leita leiða á næstu mánuðum. Núna er mars og 1. júní er bara eftir nokkra mánuði.
Frú forseti. Fyrirsjáanleiki og samfella í þjónustu er lágmarkskrafa. Því spyr ég hæstvirtan ráðherra hvort hún sé tilbúin að koma hér upp í pontu og ábyrgjast það hér og nú að enginn muni falla milli skips og bryggju við þær breytingar sem yfirvofandi eru á endurhæfingu ungs fólks.“
„Ég ítreka að það mun verða á borði heilbrigðisráðherra að fylgja því eftir með VIRK starfsendurhæfingarsjóði. Ég veit að þegar er verið að leita leiða, að þegar er verið að leita lausna. Það er ýmislegt sem við höfum verið með og sviðsmyndir sem við höfum verið að leggja á borðið, og ég hef fengið að segja mínar skoðanir hvað það varðar og koma með mínar hugmyndir að mjög svo góðum leiðum til þess að taka utan um þetta unga fólk. Ég nefni sérstaklega, bara svo ég segi það nú, það er auðvitað algjört leyndarmál og enginn má vita af því, þannig að ég treysti því að háttvirtur þingmaður hafi það bara hjá sér, að ég hef mjög mikinn augastað á Reykjalundi og því góða starfi sem þar hefur verið,“ sagði Inga.