María Sakharóva, talskona rússneska utanríkisráðuneytisins, hló þegar hún var spurð út í ástæður þess að Ísland lokaði sendiráði sínu í Moskvu árið 2023.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, greindi frá því á dögunum að starfsfólki íslenska sendiráðsins hefði verið ógnað með ýmsum hætti, en breska dagblaðið Daily Express fjallaði fyrst um hina ógnandi hegðun.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, núverandi utanríkisráðherra, staðfesti svo í samtali við Ríkisútvarpið að ein ástæða þess að sendiráðinu var lokað var sú að brotið var gróflega á friðhelgi starfsfólks þess.
Þá sagði Þorgerður Katrín að rússneskum stjórnvöldum hefði verið gert viðvart um málið.
Í frétt Prövdu kemur fram að Sakharóva hafi verið spurð á vikulegum blaðamannafundi sínum út í þessi orð Þorgerðar Katrínar um að Rússar hefðu ekki tryggt öryggi íslenska starfsfólksins. „Hver sagði það? Utanríkisráðherra Íslands? Heitir hún kannski Baerbock-2?“ spurði Sakharóva hlæjandi og gerði lítið úr útskýringum utanríkisráðherra.
Vísaði hún þar í Önnulenu Baerbock, utanríkisráðherra Þýskalands, en óhætt er að segja að hún er ekki hátt skrifuð hjá Kremlverjum.
Sakharóva sakaði Þorgerði um lygar og sagði að íslensk stjórnvöld hefðu ákveðið að loka sendiráðinu sínu og draga úr umsvifum þess rússneska í Reykjavík til þess að sýna samstöðu með vesturveldunum. Sagði hún jafnframt að enginn á Íslandi virðist hafa haft áhyggjur af þeim skaða sem þetta kynni að valda í samskiptum Íslands og Rússlands.
Sakharóva sagði jafnframt að Rússar hefðu ekki fengið neinar kvartanir frá íslenskum stjórnvöldum um ógnir eða hótanir gegn íslenska sendiráðinu eða starfsfólki þess.
Sagði hún að Rússar hefðu kvartað til íslenska utanríkisráðuneytisins vegna skemmdarverka á sendiráði Rússa í Reykjavík árið 2022 en verið svarað með „lítilsvirðingu“. Sagði Sakharóva að þar hefðu Íslendingar brugðist skyldum sínum samkvæmt Vínarsáttmálanum um sendiráð.
„Spurðu ríkisstjórn Íslands og utanríkisráðuneyti þessa lands og biddu um einhvers konar skjal sem þau hefðu sent til Rússlands vegna hinnar meintu ógnar gegn sendiráði þeirra og biddu þau um að veita fleiri öryggisráðstafanir,“ sagði Sakharóva jafnframt.