Sigurður Ingi æstur: Hvert er þessi þingsalur að fara?

Sigurður Ingi Jóhannsson.
Sigurður Ingi Jóhannsson. mbl.is/Eyþór

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknar og formaður flokksins, gagnrýndi frumvarp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um sýslumann harðlega í fyrstu umræðu á Alþingi.

Þorbjörg mælti fyrir frumvarpinu í dag en yfirgaf þingsalinn áður en fyrsta umræða um það var yfirstaðin. Hóf Sigurður Ingi ræðu sína á því að gagnrýna að ráðherra væri ekki í salnum við fyrstu umræðu. Ítrekaði hann þá gagnrýni sína oft í ræðunni og kallaði eftir að hún væri látin vita að nærveru hennar væri óskað í þingsalnum.

„Ég sé ekki hæstvirtan dómsmálaráðherra hér í salnum og vil ég óska þess að forseti geri tilraun til þess að tryggja það að ráðherrann sé og hlusti á mál okkar hér við 1. umræðu eins og rík hefð er fyrir í þinginu, og eiginlega virðing við okkur í 1. umræðu að geta átt samskipti inn beint við ráðherrann. Mér finnst það bagalegt að svo sé,“ voru upphafsorð Sigurðar Inga.

Staðsetningin ákveðin síðar

Frumvarpið byggir í grófum dráttum á frumvarpi Jóns Gunnarssonar, fyrrverandi dómsmálaráðherra, en hefur Þorbjörg þó sett mark sitt á það. Frumvarp Jóns komst ekki í gegnum þingflokk Framsóknar á síðasta kjörtímabili.

Á meðal þeirra breytinga sem lagðar eru til í frumvarpinu er að allir starfsmenn sýslumannsembættanna, að sýslumönnum undanskildum, til nýs sameinaðs embættis. Á sameinað embætti að taka til starfa í byrjun 2026. Þannig á að fækka sýslumönnum úr níu í einn, en starfsstöðvar verði áfram um allt land. Í frumvarpi Jóns átti sameinað sýslumannsembætti að vera staðsett á Húsavík, en í frumvarpi Þorbjargar er staðsetning óákveðin. Segir í frumvarpinu að kveðið verði nánar á um nýja „staðsetningu og þjónustuframboð starfsstöðva, fjölda og staðsetningu millistjórnenda og eftir atvikum mismunandi fagsvið.“

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir mælti fyrir frumvarpinu en yfirgaf þingsalinn áður …
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir mælti fyrir frumvarpinu en yfirgaf þingsalinn áður en 1. umræða um það hafði farið fram. Það gagnrýndi Sigurður Ingi harðlega og ítrekað í ræðu sinni. Karítas Sveina Guðjónsdóttir

Muni enda í Reykjavík

Sigurður Ingi benti á í ræðu sinni að mikil andstaða hefði verið við frumvarpið sem Jón lagði fram. Það hafi hann, og fleiri þingmenn, heyrt frá sýslumönnum í landinu og fleirum. Þá hafi umsagnir um drögin að frumvarpinu verið flestar hverjar neikvæðar.

Á meðal þess sem Sigurður Ingi gagnrýnir í frumvarpi Þorbjargar er hin óákveðna staðsetning. Reynslan sýni að í flestum tilvikum fari svo að starfsstöðvarnar endi í Reykjavík, eða í það minnsta á höfuðborgarsvæðinu.

„Þannig að hér gengur ráðherrann aðeins lengra í þá átt að tryggja með öllum hætti að verkefnið færist í borgríkið þar sem tveir þriðju þjóðarinnar búa og núverandi ríkisstjórn virðist ekki hafa nokkra tilhneigingu, ekki nokkra tilhneigingu, til þess að sporna við því með því að færa störf með öruggum hætti út á land. Og þetta er dæmi um það,“ sagði Sigurður Ingi.

Hver er hagræðingin?

Hann sagði að það hlyti að eiga vera hlutverk hverrar ríkisstjórnar að byggja upp þjónustu ríkisins hringinn í kringum landið, en ekki halda áfram að draga kraftana frá landsbyggðunum til höfuðborgarsvæðisins.

Sigurður Ingi benti á að ef frumvarpið yrði að lögum myndi það hafa mikil áhrif á þjónustu á landsbyggðinni, allt í nafni hagræðingar. Spyr hann hver hagræðingin sé og fyrir hvern.

„Það kemur einfaldlega ekki skýrt fram hver hagræðingin á að vera. Fyrst um sinn á hagræðingin að skila því að borga fólki biðlaun og breytingar og svo á reynslan að koma í ljós hvaða áhrif önnur hagræðing skili,“ sagði Sigurður Ingi.

Á rangri leið

„Mér finnst við á rangri leið og þið heyrið á máli mínu að ég er nokkuð æstur yfir þessu vegna þess að mér finnst þetta svo rangt. Þegar eru komin tvö frumvörp, eitt frá hæstvirtum þingmanni Jóni Gunnarssyni og Sjálfstæðisflokknum um þetta hér og síðan frá ríkisstjórninni, þá velti ég fyrir mér: Hvert er þessi þingsalur að fara? Er hann alveg hættur að horfa til þess að verja hagsmuni alls Íslands?

Er hann hættur að horfa til þess að það sé nauðsynlegt að hafa ríkisvald á átta stöðum á Íslandi til að fólk geti leitað til fólksins til þjónustunnar sem við segjum í þessum sal, að allir sitji við sama borð? Allir eiga að njóta sömu þjónustu, allir Íslendingar. Og þegar kemur að æðsta embættismanni ríkisins þá á að taka hann burt. Það er sagt: Þjónustan verður betri með stafrænni þjónustu.“

Sigurður Ingi spyr hvort íslenska ríkið hafi virkilega ekki efni á því að reka átta starfsstöðvar sýslumanns.

Þrumuræða, að eigin mati

Undir lok ræðu sinnar klappaði Sigurður Ingi sér sjálfur á bakið fyrir ræðuna og ítrekaði aftur að það væri óviðunandi að Þorbjörg Sigríður væri ekki í þingsalnum við fyrstu umræðu um frumvarp hennar.

„Nú hef ég haldið hér þrumuræðu, að eigin mati. Ég sé á þingmönnum að þeir eru hálfsvekktir yfir þessu. Ég bað um að ráðherrann væri hérna og ég skil ekki af hverju ráðherrann situr ekki hér undir 1. umræðu síns máls. Það er hefð hjá okkur. Það er mikilvægt að ráðherrann geti átt hér milliliðalaus samskipti. Það gæti t.d. verið að ráðherra myndi vilja svara mér. Hann gerir það ekki. Það gæti verið. Ekki ef hann er ekki á staðnum. Jafnvel þó hann sé einhvers staðar að hlusta. Þetta er ekki nógu gott,“ sagði Sigurður Ingi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert