Uppsagnir hjá Rauða krossinum

Samningur Vinnumálastofnunar við Rauða krossinn um félagslegan stuðning fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd verður ekki endurnýjaður. Sömu sögu er að segja um samning ráðuneytis félagsmála um ráðgjafarþjónustu við flóttafólk vegna fjölskyldusameininga. Vinnumálastofnun tilkynnti Rauða krossinum um ákvörðun sína í byrjun vikunnar.

Sá samningur rennur því út 31. maí og samningur vegna fjölskyldusameininga í lok júní. Af þessum sökum hefur Rauði krossinn orðið að segja upp sjö starfsmönnum er sinnt hafa verkefnum tengdum samningunum. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum. 

„Þung tíðindi“

„Þetta eru þung tíðindi og við þurfum nú að sjá á eftir framúrskarandi starfsfólki sem sinnt hefur þessum mikilvægu verkefnum af einstakri alúð,“ er haft eftir Gísla Rafni Ólafssyni, framkvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi.

Þá kemur fram í tilkynningunni að frá því að Vinnumálastofnun tilkynnti Rauða krossinum um ákvörðun sína hafi samtöl átt sér stað við forsvarsmenn hennar og stjórnvalda.

„Okkur er annt um að fólkið sem hefur nýtt sér þjónustuna fái hana áfram er hún færist úr höndum okkar sjálfboðaliða og starfsfólks til hins opinbera,“ er enn fremur haft eftir Gísla.

Bent er á að markmið samningsins milli Rauða krossins og Vinnumálastofnunar hafi verið að tryggja vandaðan félagslegan stuðning fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd á meðan þeir bíða niðurstöðu eða flutnings úr landi. Með félagslegum stuðningi sé m.a. átt við félagsstarf, virkniúrræði og sálfélagslegan stuðning.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert