Einkafundur með forsætisráðherra er ekki endilega fyrsta stopp þegar mál koma upp eins og það sem leiddi til afsagnar Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fráfarandi mennta- og barnamálaráðherra. Þetta sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á blaðamannafundi oddvita ríkisstjórnarinnar fyrir stuttu.
Á fundinum var Kristrún spurð út í málsmeðferð ráðuneytisins og málshraða eftir að erindi barst í síðustu viku þar sem óskað var eftir fundi með forsætisráðherra og tekið fram að mennta- og barnamálaráðherra gæti setið fundinn.
Kristrún tók fram að þó að vika væri langur tími í pólitík væri það stuttur tími í stjórnsýslu. Ítrekaði hún það sama og hún sagði í gærkvöldi, að þó að ákveðið hafi verið að bjóða ekki fund að svo stöddu fælist ekki í því afstaða.
Gaf hún lítið upp um næstu skref í málinu og hvort eitthvað yrði frekar aðhafst, en ítrekaði oft að Ásthildur hefði nú sagt af sér og sætt pólitískri ábyrgð „og sagt upp hjá ríkisstjórn Íslands.“
Sagði Kristrún afgreiðslu ráðuneytisins vera eðlilega, en sagði ákvörðun Ásthildar að hafa samband við konuna sem sendi inn erindið og fara heim til hennar hafa verið óeðlilega.
Þá var Kristrún spurð út í orð Ásthildar í yfirlýsingu sinni í morgun þar sem hún kallaði barnsföður sinn eltihrelli. Sagði Kristrún að það væri ekki hennar að svara fyrir um það hvernig Ásthildur ræddi um sín persónulegu mál.
Einnig var hún spurð hvort eðlilegt væri að Ásthildur spilaði sig sem fórnarlamb í málinu, en barnsfaðir hennar var 15 ára og hún 22 ára þegar þau áttu samræði og hún eignaðist síðar barn þeirra. Kristrún sagðist ekki vera í stöðu til að meta það og að hún þekkti minna til málsins en fjölmiðlar og hafi eðli málsins samkvæmt ekki verið á staðnum fyrir 35 árum.