Engin trúverðug svör úr forsætisráðuneytinu

Guðrún Hafsteinsdóttir segir mörgum spurningum ósvarað um mál Ásthildar Lóu.
Guðrún Hafsteinsdóttir segir mörgum spurningum ósvarað um mál Ásthildar Lóu. Samsett mynd

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ákvörðun Ásthildar Lóu Þórsdóttur, mennta- og barnamálaráðherra, um að segja sig frá ráðherraembætti rétta. Hins vegar veki meðferð trúnaðarupplýsinga í forsætisráðuneytinu upp margar spurningar.

„Þessi ákvörðun var rétt hjá henni [Ásthildi Lóu] og einnig að gera þetta svona hratt. Mér finnst málið alvarlegt,“ segir Guðrún.

Ekkert gert fyrr en fjölmiðlar höfðu samband

Hún segir mörgum spurningum ósvarað í málinu. Til að mynda hvort Flokkur fólksins hafi verið meðvitaður um stöðu Ásthildar Lóu áður en hún var gerð að ráðherra.

„Það þarf að fara í tímalínuna í þessu máli. Málinu er hvergi nærri lokið. Það hefur komið fram að vika hafi liðið frá því forsætisráðherra var upplýstur um málið og þar til eitthvað var gert. Í ljós hefur komið að ekkert var gert fyrr en fjölmiðlar hófu að hafa samband. Mér finnst það allrar rannsóknar virði,“ segir Guðrún.

Engin trúverðug svör hafa borist 

„Svo finnst mér sömuleiðis eftirtektarvert að það hafi lekið upplýsingar úr forsætisráðuneytinu og við vitum ekki hvernig það gerðist. Borgari kemur með erindi í trúnaði til forsætisráðherra en svo er annar ráðherra mættur heim til viðkomandi. Öllu þessu á eftir að svara. Enn sem komið er hefur ekki verið mikill trúverðugleiki yfir þeim svörum sem forsætisráðherra hefur borið á borð. Forsætisráðherra er æðsti trúnaðarmaður þjóðarinnar. Mér finnst það mjög alvarlegt ef rof hefur orðið á þeim trúnaði,“ segir Guðrún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert