Fundur formannanna í heild sinni

Afsögn Ásthildar Lóu Þórsdóttur sem mennta- og barnamálaráðherra var rædd með formlegum hætti á ríkisstjórnarfundi í dag.

Í kjölfar fundarins svöruðu forystukonur ríkisstjórnarinnar spurningum blaðamanna eftir að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra kynnti næstu skref hvað varðar val á nýju ráðherraefni Flokks fólksins í mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Sátu fyrir svörum í hálftíma

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, var þá spurð út í atburðarásina í kringum málið og hvernig málið birtist henni sem formanni flokksins og á eftir fylgdu fleiri spurningar til Ingu, Kristrúnar og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra.

Fundurinn stóð yfir í röskar 30 mínútur en upptöku af honum má sjá í spilaranum að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert