Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og félags- og húsnæðismálaráðherra, segir ekki koma til greina að reka Ásthildi Lóu Þórsdóttur, fráfarandi mennta- og barnamálaráðherra, úr Flokki fólksins. Þetta kom fram á blaðamannafundi oddvita ríkisstjórnarinnar nú fyrir skömmu.
Vísaði blaðamaður til þess að áður hefði Flokkur fólksins rekið fólk úr flokknum en Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson, fyrrverandi þingmenn flokksins, voru meðal annars reknir úr honum eftir Klausturmálið svokallaða á sínum tíma. Spurði blaðamaður hvort það kæmi til greina að reka Ásthildi úr flokknum eftir að fram kom að hún hafi sofið hjá 15 ára dreng þegar hún var 22 ára og eignast barn með honum.
Svar Ingu við þessari spurningu var hreint og beint „nei“.
Þá var hún einnig spurð út í meintan tálmunarhluta málsins, en Flokkur fólksins hefur talað fyrir að setja jafnvel lög sem geri tálmun foreldra refsiverða, og hvort Ásthildi væri stætt í flokknum vegna stöðunnar. Sagðist Inga ekki ætla að setja sig í dómarasæti og taka einstaka frásagnir fram yfir aðra. Sagði hún um einhliða skýringu að ræða sem sett hefði verið fram.
Inga viðurkenndi þó að hún væri smá döpur að Ásthildur hafi ekki upplýst hana fyrr um málið, en sagðist skilja vel að hún hafi ekki gert það, enda verið að rífa upp áratugagamalt mál og að hún skildi vanlíðan Ásthildar vegna þess.