Rétt ákvörðun en spjótin beinast að forsætisráðherra

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, tjáir sig um mál Ásthildar …
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, tjáir sig um mál Ásthildar Lóu. Samsett mynd

„Ég hef fullan skilning á því að einstaklingur sem gegnir starfi ráðherra barnamála taki þessa ákvörðun sem hún gerði. Auðvitað vaknar sú spurning hvort að menn hafi ekki gert sér þetta ljóst fyrir fram. Þetta voru í það minnsta ekki upplýsingar sem almenningur í landinu þekkti og þetta kom allmörgum á óvart,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, um mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur sem sagði af sér sem ráðherra mennta- og barnamála í gær.

Hefurðu skoðun á því hvort Ásthildi Lóu sé stætt á að sitja á þingi eftir þetta?

„Nei, mér finnst erfitt að setjast í dómarasæti gagnvart einhverju sem gerðist fyrir 35 árum þótt það sé augljóst að við tækjum öðruvísi á hlutum í dag. Mér finnst ákvörðun hennar eðlileg og það er útilokað að hún geti setið í starfi sem barnamálaráðherra,“ segir Sigurður Ingi.

Trúnaðarbrestur í forsætisráðuneytinu? 

Aftur á móti telur Sigurður Ingi það vekja upp spurningar hvernig haldið var á málum í forsætisráðuneytinu. Að því er fram kemur í frétt RÚV í gær óskaði einstaklingur eftir trúnaði við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra en engu að síður upplýsti aðstoðarmaður hennar Ásthildi Lóu um að þessi einstaklingur hafi óskað eftir fundi.

Ásthildur Lóa setti sig í framhaldinu í samband við viðkomandi og fór heim til hans að eigin sögn.

Mörgum spurningum sem þarf að svara

Að sögn Sigurðar Inga bendir margt til þess að trúnaðarbrestur hafi orðið í forsætisráðuneytinu.

„Það sem er áhugaverðara við þetta mál, er hvernig það verður til. Af hverju var leitað til forsætisráðuneytisins? Hvenær var það gert og á hvaða forsendum? Var verið að leita til forsætisráðuneytisins sem ábyrgðaraðila ríkisstjórnarinnar þegar kemur að siðferði. Voru þetta trúnaðarupplýsingar? Hversu lengi hafði forsætisráðuneytið það til umfjöllunar og í hvaða farveg átti málið að fara. Hvað gerðist þegar upplýsingarnar fóru til mennta- og barnamálaráðherrans? Þetta eru allt spurningar sem þarf að svara,“ segir Sigurður Ingi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert