Á góðum degi á útmánuðum er gaman að fara á hestbak eins og fólkið í Miðhúsum við Hvolsvöll gerir. Þar í Rangárþingi er fjallið Þríhyrningur fallegur bakgrunnur, í sveitum þar sem atvinnuhættir hafa gjörbreyst á fáum árum.
Hestamennska er nú orðin ein helsta atvinnugreinin á svæðinu en slíkur búskapur er stundaður á tugum bæja. Því hafa fylgt fjárfestingar fyrir milljarða króna við byggingu til dæmis tamningastöðva og ræktunarbúa, þar sem oft hafa verið reist stór hesthús og reiðskemmur, lagðir skeiðvellir og fleira.
Ítarlega umfjöllun um þetta má finna í Morgunblaðinu í gær, fimmtudag.