Telur ósamræmi í orðum Ásthildar og ráðuneytisins

Árni Helgason, bendir á ósamræmi í orðum Ásthildar Lóu í …
Árni Helgason, bendir á ósamræmi í orðum Ásthildar Lóu í viðtali á RÚV í gær og í yfirlýsingu forsætisráðuneytisins. Samsett mynd

Árni Helgason, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur misræmi í yfirlýsingu sem forsætisráðuneytið sendi frá sér í gær og þeirra orða sem Ásthildur Lóa Þórsdóttir viðhafði í samtali við RÚV í gær þar sem hún skýrði nánar frá máli er leiddi til afsagnar hennar.

Bendir Árni á það að í yfirlýsingu sem kom frá forsætisráðuneytinu segi að fyrir utan tölvupóstssamskipti hafi engin samskipti verið um málið. Hins vegar segir Ásthildur Lóa í viðtalinu að aðstoðarmaður Kristrúnar hafi látið hana fá nafn og heimilisfang manneskjunnar.

„Í viðtali við Rúv segir Ásthildur Lóa að aðstoðarmaður forsætisráðherra hafi látið hana hafa upplýsingar um konuna sem sendi bréfið. Þetta er ekki í samræmi við það sem kemur í sérstakri leiðréttingu forsætisráðuneytisins "um meintan trúnaðarbrest" þar sem segir að fyrir utan tölvupóstssamskipti hafi engin önnur samskipti átt sér stað um málið. Hvort er það? Lítur ráðuneytið svo á að það teljist ekki samskipti um málið að ráðherrann fái nafn og heimilisfang konunnar og fari svo að hringja ítrekað í hana og mæta óboðin á heimili hennar? Það er líka áhugavert að sjá að ráðuneytið tjáir sig ekkert um málið að öðru leyti. Þetta er náttúrulega ein útgáfan af stjórnsýslu, ef forsætisráðherra er sent bréf með upplýsingum um mál sem varða tiltekinn ráðherra, má viðkomandi þá eiga von á því að að sami ráðherra banki upp á heima hjá viðkomandi nokkrum dögum síðar?,“ spyr Árni í færslunni.  

Uppfært: Ráðuneytið hefur bent á að það telji Árna misskilja yfirlýsingu úr ráðuneytinu. Þar hafi komið fram að aðstoðarmaður forsætisráðherra hafi komið upplýsingum til aðstoðarmanns Ásthildar Lóu. Í framhaldinu hafi einungis tölvupóstsamskipti verið á milli sendanda og forsætisráðuneytisins en engin samskipti á milli ráðuneytanna fyrr en í gær.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert