Konan sem óskaði eftir fundi með forsætisráðherra, og hóf þar með atburðarás sem endaði með afsögn barna- og menntamálaráðherra, kveður sér hafa ofboðið að Ásthildur hafi haft samræði við 15 ára strák.
Enn fremur segir hún að forsætisráðuneytið hafi fullvissað hana um að trúnaðar yrði gætt.
„Eins og ég sagði við hana þegar hún hringdi í mig: Ég sagði, ástæðan fyrir því að ég vil að þú víkir sem barnamálaráðherra, þú skreiðst upp í til fimmtán ára stráks og það er nóg fyrir mig,“ segir Ólöf Björnsdóttir, konan sem um ræðir, í viðtali við Ríkisútvarpið.
Ólöf hafði samband við forsætisráðuneytið og bað Kristrúnu um fund. Þann 11. mars ítrekaði hún erindið og óskaði eftir stuttum fundi með Kristrúnu.
„Góðan daginn, ég bið um stuttan fund með Kristrúnu Frostadóttur, en það varðar Ásthildi Lóu Þórsdóttur, það er í góðu lagi að hún sitji líka fundinn, ef Kristrún vill það. Liggur á,“ segir í póstinum.
Hún tekur fram að hún hafi ekki með þessu boðið Ásthildi Lóu á fundinn heldur aðeins verið að benda Kristrúnu á það að þegar hún hefði fengið að vita hvert málefnið væri þá mætti Kristrún bjóða Ásthildi á fundinn.
Aðstoðarmaður Kristrúnar sýndi Ásthildi nafnið á konunni, Ólöfu, þann sama dag. Ásthildur kvaðst ekki vita hver konan væri en hafði engu að síður samband við hana 16. mars.
Ólöf segir að Ásthildur Lóa hafi talað við sig í 45 mínútur og reynt að segja sér að það sem gerðist milli hennar og barnsföður hennar hefði verið öðruvísi en hún héldi.
Ólöf ræddi á engum tímapunkti við Ásthildi Lóu áður en hún hafði samband við forsætisráðuneytið. Hún kveðst hafa haft samband við forsætisráðuneytið áður en hún sendi nokkuð til að ganga úr skugga um að trúnaður ríkti um það sem kæmi þar fram.
„Ég vildi ekki senda neitt nema vera viss um að það færi ekki út um borg og bý.“