Dómsmálaráðuneytið auglýsti laust til umsóknar embætti varadómanda við Endurupptökudóm 28. febrúar. Umsóknarfrestur rann út þann 17. mars og barst ráðuneytinu ein umsókn, frá Tómasi Hrafni Sveinssyni, formanni umdæmisráðs Barnaverndar Reykjavíkur.
Hefur sú umsókn verið send dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara til meðferðar.
Skipað verður í embættið eftir að dómnefnd lýkur störfum, að því er segir á vef dómsmálaráðuneytisins.