Eggert tók fréttamynd ársins 2024

„Fréttamynd ársins fangar augnablik sem breytti sögunni, tímapunktinn þegar þjóðin …
„Fréttamynd ársins fangar augnablik sem breytti sögunni, tímapunktinn þegar þjóðin áttaði sig endanlega á alvarleika stöðunnar í Grindavík," segir í umsögn dómnefndar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Blaðaljósmyndarafélag Íslands veitti Eggert Jóhannessyni, ljósmyndara Morgunblaðsins og mbl.is, verðlaun fyrir fréttamynd ársins 2024.

Ljósmyndin var tekin í janúar árið 2024 er leit stóð yfir í Grindavík að Lúðvík Péturssyni sem hvarf er hann var að vinna við að fylla sprungur fyrir Náttúruhamfaratryggingu Íslands.

Kjartan Þorbjörnsson, eða Golli, ljósmyndari Heimildarinnar fékk verðlaun fyrir mynd ársins 2024.

Mynd ársins 2024.
Mynd ársins 2024. Heimildin/Golli

Verðlaunin voru afhent í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Í dómnefndinni sátu Árni Torfason, Unga Sighvatsdóttir og Patrick Brown, sem er tvöfaldur World Press Photo vinningshafi og var formaður dómnefndarinnar.

Á ljósmyndasýningunni Myndir ársins 2024 er 101 mynd frá 14 blaðaljósmyndurum sem valdar voru úr mörg hundruð innsendum myndum. Sextán ljósmyndarar sendu inn myndir til dómnefndar og mátti hver eingöngu senda inn 66 myndir.

Á sýningunni eru myndirnar í sex flokkum: fréttamyndir, daglegt líf, íþróttamyndir, portrettmyndir, umhverfismyndir, og myndaraðir. Í ár veitti dómnefndin verðlaun fyrir bestu fréttamynd ársins auk þess sem ein mynd úr fyrrnefndum flokkum var valin mynd ársins 2024. Sýningin verður opin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur til 27. apríl 2025.

Á myndinni má sjá Golla og Ragnhildi Aðalsteinsdóttur, sem situr …
Á myndinni má sjá Golla og Ragnhildi Aðalsteinsdóttur, sem situr í stjórn Blaðaljósmyndarafélagsins, stilla upp ljósmyndum á sýningunni. Sýningin verður opin til 27. apríl. mbl.is/Eyþór

Í umsögn dómnefndar segir um mynd Eggerts: 

„Fréttamynd ársins fangar augnablik sem breytti sögunni, tímapunktinn þegar þjóðin áttaði sig endanlega á alvarleika stöðunnar í Grindavík. Mannslíf hafði tapast, skilningur okkar á aðstæðum breyst, vendipunkti var náð. Myndin fangar nöturleikann vel og gefur góða tilfinningu fyrir umfangi björgunaraðgerða og hversu erfiðar þær voru. Aðstæður á vettvangi voru afar krefjandi fyrir björgunarfólk og vafalaust einnig fyrir ljósmyndara að störfum. Um hættusvæði var að ræða, aðgangur takmarkaður, veður slæmt.

Ljósmyndari staðsetur sig fullkomlega; sýnir okkur atburðinn vel og minnir á að sprungan er ekki staðsett á víðavangi heldur alveg við hús, hús sem stendur að því er virðist á engu. Aðstæður hamla ekki ljósmyndaranum við störf sín heldur nýtir hann þær sér í hag og bleytan á linsunni bætir dýpt í myndina, endurspeglar aðstæður með áþreifanlegum hætti.

Myndefnið er vel rammað inn og þótt segja megi að ró sé yfir, má skynja þungann undir. Yfir vettvangi hanga síðan rauð flögg, sem er einstaklega táknrænt.“

Í umsögn dómnefndar um mynd Golla segir: 

„Dómnefnd var einróma í vali á mynd ársins. Myndin grípur strax og er áhugaverð fyrir margra hluta sakir.

Myndin er hluti af myndröð um flóttafólk frá Palestínu og mótmæli vegna framgöngu yfirvalda í málefnum þeirra. Hún kjarnar á vissan hátt eitt stærsta mál samtímans, stöðu flóttafólks í veröldinni. Börn og fjölskyldur sem búa við stöðuga ógn leita skjóls, sem oft er erfitt að finna. Barnið á myndinni er á stað sem heita má öruggur, en leitar þó athvarfs og á vissan hátt er táknrænt að barnið virðist vaxið upp úr skjóli sínu.

Táknmynd sjálfstæðis, Jón Sigurðsson, vakir yfir og flugvélin gefur tengingu við umheiminn en minnir jafnframt á þá áframhaldandi ógn sem flóttafólk býr við, að geta átt von á því að vera sent úr landi. Myndin hefði verið sterk án flugvélarinnar en ljósmyndarinn var þolinmóður og smellti af á hárréttu augnabliki.

Marglaga, vel uppbyggð og afar falleg mynd að mati dómnefndar en um leið þrungin merkingu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert