Forsætisráðherra hefur sagt að aðstoðarmenn ráðherra hafi átt í samskiptum vegna málsins sem batt skjótan endi á ráðherradóm Ásthildar Lóu Þórsdóttur. Hinn fráfarandi ráðherra segir aðra sögu.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjasta þætti Spursmála þar sem Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins og Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins ræða þá stöðu sem nú er komin upp í pólitíkinni í kjölfar þess að Ríkisútvarpið upplýsti að Ásthildur Lóa hefði stofnað til kynferðislegs sambands við 15 ára dreng þegar hún var sjálf 22 ára gömul.
Í þættinum er einnig velt vöngum yfir því af hverju Kristrún Frostadóttir lét undir höfuð leggjast í heila viku að komast til botns í máli Ásthildar Lóu og gerði raunar engan raunverulegan reka að því uns ljóst var að fjölmiðlar voru farnir að hnusa að málinu.
Orðaskiptin um þessi atriði má sjá í spilaranum hér að ofan. Þá er viðtalið við Snorra og Diljá aðgengilegt í heild sinni í spilaranum hér að neðan: