„Miðstjórn Framsóknar hafnar alfarið þeirri vegferð ríkisstjórnarinnar að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Sá leiðangur er svik við íslensku þjóðina eftir yfirlýsingar ríkisstjórnarflokkanna fyrir kosningar.“
Svo hljóðar ein af fimm stjórnmálaályktunum miðstjórnar Framsóknar sem var samþykkt á miðstjórnarfundi í dag. Fundurinn var haldinn á hótel KEA á Akureyri þar sem ríflega 150 manns mættu.
Í tilkynningu frá Framsókn segir að flokkurinn ætli að veita ríkisstjórninni öflugt aðhald og sinna sínu hlutverki í stjórnarandstöðu.
„Vandræðagangur ríkisstjórnarflokkanna þessar fyrstu vikur samstarfsins gefur ekki góð fyrirheit um framhaldið,“ segir þar jafnframt.
Þá ætlar flokkurinn að leggja áherslu á sjálfstæði þjóðarinnar og full yfirráð yfir auðlindum landsins, auk þess sem flokkurinn vill leggja ríka áherslu á mikilvægi alþjóðasamvinnu og virka þátttöku þjóðarinnar á þeim vettvangi.
„Á þeim óvissutímum sem uppi eru í alþjóðamálum vill Framsókn tryggja hagsmuni þjóðarinnar með áherslu á frið, jafnrétti og virðingu fyrir alþjóðalögum. Framsókn leggur áherslu á mikilvægi Atlantshafsbandalagsins (NATO) og telur mikilvægt að einblína á langtímahagsmuni Íslands með skynsamlegri stefnu í alþjóðamálum.“