Samtalið „verður ekkert viðrað hér í smáatriðum“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, ræddu um …
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, ræddu um afsögn Ásthildar Lóu Þórsdóttur á Alþingi í dag. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/Ólafur Árdal

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að Ásthildur Lóa Þórsdóttir verði sjálf að segja frá því hvers vegna hún sagði af sér sem mennta- og barnamálaráðherra í liðinni viku. „Samtal okkar þriggja á milli verður ekkert viðrað hér í smáatriðum. Auðvitað eru ýmsir þættir málsins sem eru ræddir.“

Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag þar sem afsögn Ásthildar Lóu og viðbrögð ríkisstjórnarinnar voru mál málanna. 

Hvaða aðrir valkostir voru ræddir?

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði ráðherra hvaða aðrir valkostir hefðu komið til tals á milli Ásthildar Lóu og formanna ríkisstjórnarflokkanna. 

„Forsætisráðherra hefur ekki gert grein fyrir hvaða aðrir valkostir voru ræddir, ef einhverjir voru, eða hvað í málinu leiddi til þessarar niðurstöðu. Það er mikilvægt að þingið og þjóðin fái skýr svör. Hvers vegna var það mat forsætisráðherra og samstarfsflokkanna að Ásthildur Lóa Þórsdóttir skyldi víkja úr embætti og hvaða aðrir kostir voru í raun til skoðunar áður en ákvörðun var tekin,“ spurði Guðrún. 

Ýmsir þættir málsins ræddir

Kristrún svaraði og sagði að það væri í grundvallaratriðum í hendi fyrrverandi ráðherra að segja frá því hvers vegna hún hefði tekið þá ákvörðun að segja af sér.

„Samtal okkar þriggja á milli verður ekkert viðrað hér í smáatriðum. Auðvitað eru ýmsir þættir málsins sem eru ræddir. Ég held að það liggi alveg fyrir, eins og hefur bara víða komið fram, enda hefur þetta mál verið viðrað mjög rækilega og allar upplýsingar borist, að það er á þessum fundi sem ég og formaður Viðreisnar fáum í fyrsta skipti frásögn þáverandi ráðherra af þessari stöðu. Þetta er í fyrsta skipti sem við ræðum við hana um þetta mál og stór hluti fundarins fer einfaldlega í að fara yfir málið,“ segir Kristrún. 

Kristún tók fram að það lægi fyrir og hún hefði áður sagt það sjálf opinberlega, og Ásthildur Lóa væri einnig meðvituð um það, að það hefðu ekki verið eðlileg viðbrögð hjá henni að ákveða að banka upp á hjá konunni sem hratt málinu af stað. 

Ekki eðlileg hegðun hjá ráðherra

„Ég held að það geti allir tekið undir að það er ekki eðlileg hegðun af hálfu ráðherra í þessu samhengi. Þannig að það eitt og sér finnst mér umhugsunarvert hjá manneskju í slíkri stöðu. Hún áttaði sig á því og var líka meðvituð um það.

Síðan vil ég bæta því við að algjörlega óháð því hvað í grundvallaratriðum réð hennar afstöðu, því að það er ekki mitt að segja frá því hvað dreif hennar ákvarðanatöku í grundvallaratriðum, þá liggur það auðvitað fyrir að þegar upp koma svona mál þá taka þau á og fólk þarf einfaldlega tíma til að jafna sig,“ sagði Kristrún. 

Snýst um ráðherrann sem sat og gerði ekkert

Guðrún sagði að svar hennar hefði vakið upp fleiri spurningar en svör.

„Förum aðeins yfir þetta. Hér segir hæstvirtur forsætisráðherra að þarna hafi á þessum fimmtudegi formenn flokkanna í fyrsta sinn heyrt af þessari frásögn. En það er staðreynd að forsætisráðherra og Ásthildur Lóa Þórsdóttir, háttvirtur þingmaður, hittust nokkrum sinnum dagana 13.–20. mars og það hefði verið bæði mögulegt og eðlilegt að spyrja hana út í málið án þess að brjóta trúnað. Engin formleg athugun virðist hafa farið fram, ekkert mat, engin viðtöl, engin greining. Eina ákvörðunin sem virðist hafa verið tekin er að hafna fundarbeiðni frá þeim sem hafði komið með upplýsingarnar og ýta ráðherranum í farveg afsagnar.

Ég vil því spyrja aftur: Ef forsætisráðherra taldi málið svo alvarlegt að það réttlætti afsögn ráðherrans, hvers vegna gerði hæstvirtur forsætisráðherra ekkert í heila viku? Var þetta vanmat á alvöru málsins eða von um að það gengi yfir án frekari umræðu? Þetta snýst ekki lengur um ráðherrann sem vék, þetta snýst um ráðherrann sem sat og gerði ekkert,“ sagði Guðrún. 

Ósammála því að ekkert hafi verið gert

Kristrún tók fram að um gífurlega viðkvæmt mál væri að ræða sem hefði átt sér stað fyrir 35 árum.

„Ég held að það hljóti allir hér inni að vera sammála því að þegar inn í ráðuneyti berst svona frásögn frá þriðja aðila, sem er ekki aðili að máli, þá er rétt að vanda til verka. Það er rétt að vanda til verka og ég held að við hljótum öll að vera meðvituð um það, eftir fréttir síðustu daga, að það er ekki augljóst hvernig þú ferð af stað í máli sem berst frá þriðja aðila, að þú takir upp símann og ræðir umrætt mál beint við ráðherra áður en þú aðhefst, þar með talið er ekki verið að taka afstöðu til málsins. Það voru sex dagar liðnir frá því að erindið kom inn í forsætisráðuneytið, þar með talið er helgi þarna á milli. Þó að stjórnsýslan hafi ekki hreyft sig í ákvarðanatöku í þessu máli eftir sex daga þýðir það ekki að ekkert hafi verið gert,“ sagði Kristrún. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert