Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu þurfti að senda aftur dælubíl í Hellnahverfi í Hafnarfirði í kvöld til að slökkva eld sem tekist var á við fyrir hádegi í dag.
Í morgun kviknaði í rafhlöðum á endurvinnslusvæði Hringrásar í Álhellu og voru tveir dælubílar sendir á vettvang til að slökkva eldinn.
Klukkan 21 blossaði eldurinn svo aftur upp.
Lárus Steindór Björnsson varðstjóri segir í samtali við mbl.is að einn dælubíll hafi verið sendur á vettvang núna fyrr í kvöld.
„Það kviknaði aftur í þessu,“ segir Lárus en bætir við að aðgerðum á vettvangi sé nú lokið.