Rétt upp úr miðnætti bárust Neyðarlínu neyðarboð frá Langjökli, rétt við fjallið Klakka. Við nánari eftirgrennslan voru þar tveir menn á ferð á vélsleðum og höfðu þeir lent í talsverðri festu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg en þar kemur fram að mennirnir hafi verið vel búnir og engin hætta hafi verið á ferðum en þeir óskuðu aðstoðar við að losa sleða sína.
Björgunarsveitir suður af Langjökli voru boðaðar út sem og björgunarsveit úr Borgarfirði. Ferð björgunarsveita gekk ágætlega inn að jökli og klukkan 3 í nótt komu fyrstu björgunarmenn sem voru á sleðum, á vettvang.
Vel gekk að aðstoða við að losa föstu sleðana og þáðu sleðamennirnir fylgd til byggða, þar sem bensínbirgðir voru orðnar af skornum skammti.
Þá kemur fram í tilkynningunni að rétt upp úr klukkan eitt í nótt barst aðstoðarbeiðni frá fiskibát sem var þá staddur rétt norður af Hornbjargi. Það óhapp hafði orðið að olía fór af stýriskerfi og báturinn því stjórnlaus. Fjórir menn eru um borð, veður ágætt og ekki mikil hætta á ferðinni.
Varðskipið Þór, sem var statt í Grundarfirði, var sent af stað vestur ásamt því að áhöfnin á björgunarskipinu Gísla Jóns á Ísafirði var boðuð út. Bæði skip voru að leggja úr höfn rétt um hálf tvö í nótt.
Klukkan fimm í morgun kom svo Gísli Jóns að bátnum og rétt um tíu mínútum síðar var búið að koma taug á milli skipanna og skipstjóri Gísla Jóns setti stefnuna inn á Ísafjörð. Drátturinn hefur ekki gengið alveg áfallalaust fyrir sig, en eftir um klukkustundar drátt hafði einn þáttur dráttartaugar um borð í fiskibátnum slitnað og þurfti að stöðva ferð meðan áhöfn bátsins lagaði það.
Því verki var lokið snöfurmannlega og rétt um hálf átta í morgunsárið var hægt að halda ferð áfram. Skipin eru nú á um 6 sjómílna hraða eða 11 km á klukkustund, í vesturátt fyrir norður af Hornvík.
Varðskipið Þór heldur áfram för norður fyrir Vestfjörðum áleiðis í átt að Gísla Jóns og fiskibátnum.
Óvíst er hvenær von er á bátunum inn til Ísafjarðar.