Starfsfólk Söngskóla Sigurðar Demetz kallar eftir endurskoðun á framlagi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Kennarar skólans standa nú frammi fyrir því að geta átt von á uppsagnarbréfi á næstu mánuðum.
Þetta segir í opnu bréfi til ráðherra menntamála, Guðmundar Inga Kristinssonar, og ráðherra menningarmála, Loga Einarssonar.
Segir þar enn fremur að það yrði í þriðja sinn frá árinu 2011 sem kennarar skólans stæðu frammi fyrir uppsagnarbréfi.
Ástæða þess er sögð vera að samkomulag var gert árið 2011 á milli ríkis og borgar sem hafi falið í sér að ríkið tæki yfir greiðslu fyrir kennslu á framhaldsstigi á hljóðfæri og mið- og framhaldsstigi í söng.
Þá sér jöfnunarsjóðurinn um að greiða hluta ríkisins og samkomulagið hefur verið endurnýjað á þriggja ára fresti.
„Vandamálið liggur í því að upphæð framlagsins á þessum 3 ára tímabilum hækkar einungis eftir launavísitölu en tekur ekki tillit til launahækkana kennara sem eru stundum hærri en almenn launavísitala, eins og t.d. núna þegar kennarar náðu fram 24% launahækkun á tímabilinu 2024-2028. Við kennarar fögnum að sjálfsögðu þeirri tímabæru hækkun, en ef hún verður til þess að við missum vinnuna þá verður að segjast að hún sé bjarnargreiði,“ segir í bréfinu.
Þá kemur fram að þar sem söngskólar séu í hlutarins eðli með mun stærri hluta af sínum kennslukostnaði undir samkomulaginu lendi þeir ítrekað í milljóna tapi þegar misræmi verður á kennslukostnaði og framlagi.
Í tilfelli Söngskóla Sigurðar Demetz hlaupi tapið á um tíu milljónum króna vegna kennslukostnaðar á þessu skólaári fram í ágúst. Er upphæðin há fyrir fátækan skóla sem reki sig á sléttu.
Í bréfinu segir að eina leiðin sem skólinn hafi til að bjarga sér sé að hækka skólagjöld sem nú þegar séu með hæsta móti. Þá er bent á að ólöglegt sé að greiða kennslukostnað af skólagjöldum en aðstæður neyði þó skólann til þess að gera það samt sem áður.
„Þetta er afar vond staða og ljóst er að skera þarf verulega niður frá og með næsta hausti ef skólanum tekst yfir höfuð að lifa af. Ef allt væri eins og best væri á kosið fengjum við í Söngskóla Sigurðar Demetz að fjölga í skólanum og geta þar með lækkað skólagjöldin á móti sem kæmi almenningi vel.
Við viljum því hvetja fulltrúa barna- og menntamálaráðuneytisins og sambands sveitarfélaganna til þess að endurskoða framlag Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaganna þannig að tekið verði tillit til þessarar alvarlegu stöðu sem upp er komin. Einfaldasta breytingin væri sú að framlag til tónlistarskólanna taki tillit til launahækkana kennara frá þeim degi sem hækkanirnar koma til framkvæmdar,“ segir í bréfinu.
Í bréfinu segir að skólinn fagni frumvarpi Loga Einarssonar menningarmálaráðherra um Þjóðaróperu.
„Við fögnum því að sjálfsögðu öll þar sem þar verður til vettvangur fyrir okkar nemendur til framtíðar. En á sama tíma verður að passa upp á söngnámið svo þeir listamenn sem munu starfa við óperuna í framtíðinni verði til yfir höfuð.“
Þá kemur einnig fram að söngkennsla hafi hingað til verið eini vettvangurinn fyrir íslenska söngvara til að geta verið með fastar tekjur.
„Lauslega reiknað hefur söngnemendum nú þegar fækkað um 150 manns á ári í Reykjavík frá því að þetta nýja samkomulag varð til. Nú þarf að spýta í lófana og laga til í eitt skipti fyrir öll. Við skorum á barna- og menntamálaráðuneytið og Reykjavíkurborg að brúa bilið milli launahækkana kennara og launavísitölu svo að Söngskóli Sigurðar Demetz geti starfað áfram.“