Kornax tryggir hveitiinnflutning

Einu hveitiverksmiðju landsins verður lokað á næstunni.
Einu hveitiverksmiðju landsins verður lokað á næstunni. mbl.is/sisi

„Þetta er komið svo langt að það er erfitt að snúa við og ég held að stjórnvöld þurfi að koma að þessu ef það er raunverulegur vilji til þess,“ segir Arnar Þórisson forstjóri Líflands um ummæli Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra að það sé mikið áhyggjuefni ef hveitiframleiðslu verði hætt á Íslandi.

Ráðherrann sagðist hafa ríkan vilja til þess að hveitiframleiðslu yrði framhaldið því það varðaði þjóðaröryggi. Hún hvatti Kornax til að kæra ákvörðun heilbrigðiseftirlitsins um að heimila ekki starfsleyfi á Grundartanga.

Arnar segir ekki einfalt að snúa við og hann hafi ekki heyrt í ráðuneytinu annað en það sem fram kom í fjölmiðlum um helgina.

„Við erum búin að fjárfesta og semja um breytingar á innflutningi á hveiti eftir að húsnæðinu var sagt upp og ekki fékkst leyfi til að byggja nýja verksmiðju á Grundartanga. Við erum búin að gera leigusamninga til þriggja ára við fyrirtæki í Danmörku, búin að kaupa hveiti sem þar verður malað þannig að þetta er ekki bara að snúa lyklinum og kveikja á aftur.“

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert